Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2004, Blaðsíða 64
Tillaga til þingsályktunar
Úttekt á skipulagi
sj óbj örgunar mála
Jóhann Ársælsson er fyrsti flutnings-
maður þingsályktunar um að Alþingi
ákykti að fela ríkisstjórninni að gera út-
tekt á skipulagi sjóbjörgunarmála með
það að markmiði að auðvelda og hraða
björgunaraðgerðum þegar slys hafa orð-
ið.
í greinargerð með tillögunni segir:
Þingsályktunartillaga þessi var lögð
fram á 127. og 128. löggjafarþingi en
varð ekki útrædd og er nú lögð fram ó-
breytt.
Á íslandi er samstaða um að allt skuli
gert sem mögulegt er til að tryggja öryggi
sjófarenda. Björgunarsveitir og stjórnvöld
þurfa þess vegna að vera stöðugt á varð-
bergi til að nýta nýjustu tækni og nýja
möguleika til að auka öryggi á sjó og
flýta björgunaraðgerðum þegar slys hafa
orðið. Flutningsmenn telja rétt að stjórn-
völd fari vandlega yfir skyldur sínar hvað
þessi mál varðar í samráði við aðra sem
annast framkvæmd þeirra í því skyni að
bæta enn frekar það öryggiskerfi sem fyr-
ir er. Minna má á að ýmsar breytingar
hafa orðið á skipulagi björgunarmála á
undanförnum árum og af þeim ástæðum
er nauðsynlegt að stjórnvöld skoði hvort
hlutverkum sé þar skipt með skilvirkum
og öruggum hætti eða hvorl gera þurfi
breytingar á lögum í þvi skyni.
Sjóslys geta orðið hvar sem er á mið-
unum umhverfis landið og við ströndina
en þó hefur reynslan sýnt að sumir staðir
við strendur landsins eru mun hættulegri
en aðrir. Sem dæmi má nefna Snæfellsnes
og Reykjanes. Á sumum þessara staða er
afar erfitt að koma við björgun frá landi
og um algerar vegleysur að fara. Þó að
notkun þyrlna hafi mjög aukið mögu-
leika til björgunar úr lofti mun aðstoðar
frá landi alltaf verða þörf.
Á suma af þessum stöðum mætti gera
akfæra slóða sem mundu nýtast björgun-
armönnum þegar slys yrðu. Gerð slíkra
slóða, glögg merking þeirra og annarra
slóða sem nýta má til að nálgast slysstað
og við leit með ströndum fram getur flýtt
Burðarmiklir bátar frá Knörr
Bátastöðin Knörr ehf. á Akranesi framleiðir báta sem falla vel að þörfum
sjómanna og henta aðstæðum á íslandsmiðum. Hönnun bátanna byggir á
áratuga reynslu í bátasmíði og þjónustu við flotann og samráði við dugmikla
og vana sjómenn. Við hönnunina er lögð áhersla á öryggi, burðargetu og
mikinn ganghraða, ekki síst undirfarmi.
—
Knörr 799
Brúttótonn 4,10 brt.
Knörr 650
Brúttótonn 2,7 brt.
BATASTOÐIN KNORR
Smiðjuvöllum • Akranesi • Sími: 431 2367 • Fax: 431 1523
Netfang: knerrir@knerrir.is" Heimasíða: knerrir.is
Knörr 1500
Brúttótonn 14,99 brt.
Nánari upplýsingar í síma 896 6278 eða á heimasíðunni okkar www.knerrir.is
64 - Sjómannablaðið Víkingur