Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Side 4
Að vera
sjómaður
Gnægtarþjóðfélag nútímans hefur haft endaskipti á öllu sem
snýr að lífi og tilveru okkar á öllum sviðum. Petta á sennilega bet-
ur við um sjómannastéttina en nokkra aðra starfsstétt íslensks at-
vinnulífs. Krafan um aukin lífsgæði og innihaldsríkt fjölskyldulíf
er allsráðandi og sjálfsögð í hugum flestra, en þar komum við
einmitt að þeirri sérstöðu sem sjómaðurinn lifir við. Hér áður fyrr
fyrir, 20-30 árum, var ekki mikið um að sjómenn tækju sér frí.
1-2 túrar á ári hjá togarasjómanni þótti vel í lagt. Ekki þótti við
hæfi að menn tækju sér frí á vetrarvertíð þótt ekki væri nema einn
róður og almennt séð má fullyrða að frítökur hafi ekki tíðkast svo
neinu næmi nema helst ef nákomnir ættingjar féllu frá. Veikinda-
frí var hugtak sem ekki þekktist á þeim tíma og fræg er sagan um
hásetann sem staulaðist upp í brú og tilkynnti skipstjóranum að
hann væri með sting, en eins og flestir muna þá brást skipstjórinn
við með þeim hætti að segja: Jú, það er það sem okkur vantar
einmitt niður í lest, mann með sting og pillaðu þig niður.”
Þangað fór maðurinn og dó drottni sínum. Margur sjómaðurinn
býr við þá lífsreynslu að börnin hans eru allt í einu orðin fullorðin
eins og hendi veifað og þá leitar gjarnan á menn sú tilfinning að
þeir hafi misst af einhverju stókostlegu og óafturkræfu. Sem bet-
ur fer hefur þetta ástand farið batnandi með árunum og er í
ákveðnum tilvikum sem, reyndar eru enn allt of fá, orðið með
þeim hætti að um hreina byltingu er að ræða frá því sem áður var.
Þótt sjómannsstarfið nú á tímum valdi röskun á lífsmynstri
fólks sem við það býr þá vil ég meina að talsverður fjöldi íslenskra
sjómanna hafi nú tök á fríum sem standist á ársgrundvelli sam-
jöfnuð við ýmsar starfsstéttir aðrar. Með hliðsjón af þeim stór-
auknu kröfum sem fólk gerir til lífsins gæða þá blasir það við að
betur má ef duga skal í þessum efnum. Frum forsenda þess að
dugandi menn geri sjómennskuna að ævistarfi, felst í því að kjör
þeirra og afkoma sé með þeim hætti að þeir geti notið samvista
með sínum nánustu, a.m.k. í sama mæli og gengur og gerist hjá
þeim sem í landi starfa. Langt er til lands í þessum efnum, en ef
við bærum gæfu til að koma málum í slíkan farveg þá þurfum við
engu að kvíða.
Sjómannadagurinn er framundan. Þessi dagur hefur rétt eins og
þjóðfélagið allt tekið miklum breytingum í gegnum tíðina. Þótt
framkvæmd og uppákomur dagsins breytist í tímans rás þá stend-
ur það óhaggað að dugandi sjómannastétt er, svo langt sem séð
verður, hornsteinn þjóðfélagsins.
Kæru félagar. Til hamingju með daginn
Árni Bjarnason
Útgcfandi: Völuspá, útgáfa, í samvinnu viö Farrnanua og
fiskimannasambantl íslands.
Afgrciðsla og áskrift: 462-2515/ nctfang, jonhjalla@hotniail.com
Ritst jóri og ábyrgðarmaður: jón Hjaltason. sími 462-2515,
nctfang; jonhjalta@hotmail.com Byggðavegi 101B, 600 Akureyri.
Auglýsingastjóri: Sígn'm Gissurardóttir, sími 587-4647.
Ritnelnd: Ární Bjarnason, l lilmar Snorrason og Jón I Ijaliason.
Borseli I FSÍ: Árni Bjarnason.
Prentvinnsla: (iutenberg.
Aðildarfclög I FSÍ: f elag skipstjórnarmanna, Félag íslcnskra loftskeytamanna, l élag bryta,
Skipstjóra- og stýrimannafélögin Verðandi, Vestmannaeyjum og Vísir, Suðurnesjum.
Sjómannablaðið Vikingur kemur út Ijórum sinnum á ári og er dreifl til allra félagstnanna
r i sí.
yfirlit
Sjómenn og aðrir lesendur Víkings
Sendið okkur línu um efni blaðsins,
gagnrýni eða hrós, tillögur um efnis-
þætti og hugmyndir um viðtöl við
áhugaverða sjómenn, jafnt farmenn
sem hina er draga fisk úr sjó. Hjálpið
okkur að halda úti þættinum; Raddir af
sjónum. Netjið á, jonhjalta@hotmail.com
6-11 Ólafur Ragnarsson: Ég hjálpaði ríkinu að flytja inn svoKtið af áfengi.
12-14 Hilmar Snorrason: Jón Vídalín, Sunnutindur, Kambaröst, Hólmatindue, Jílíus Geirmundsson, Krossavík, Fengur; öll í Namibíu.
16-18 Gógó, elsti sjómaður flotans. Bernharð Haraldsson ræðir við hann.
20-21 Myndaopnan er að þessu sinni frá fiskidögum á Dalvík.
22-26 Hélt þetta væri gamansemi: Valgeir Sigurðsson ræðir við sjókokkinn Svein Valtýsson.
28-30 Ingimundur Valgeirsson: Málfundir um öryggismál sjófarenda 2005-2006.
31 Fjöltækniskólinn; hagnýtt nám í rekstri og stjórnun.
32-35 Brunel er maðurinn sem Bretar nútímans segja ann- an af tveimur merkustu samlöndum sínum. Þórdís Bernharðsdóttir fjallar um sögu skipasmíða.
36 Friðrik V: Fiskur á grillið.
38-40 Gunnar Guðmundsson skrifar um ótrúlega þrekraun tveggja doríu-sjómanna. Reru samfleytt í fimm daga og fimm nætur.
42-44 Ragnar Hólm Ragnarsson: Hilmar Hansson sleppir risa-ísaldarurriða.
46-56 Súesskurðurinn, saga hans rakin frá dögum faraóana.
51 Lausn seinustu krossgátu.
55 Krossgátan.
56 Rökhyggja karlmanna.
58-60 Utan úr heimi Hilmars Snorrasonar: Ný hætta steðjar að hvölum.
61 Skaginn og Scanvaegt sameina kraftana.
64 Hilmar Snorrason siglir um netið.
66 Raddir af sjónum: Allt um Nigara (sem ritstjórinn vissi ekki).
Forstðumyndin:
Sigurbjðrg ÓF-1 í ágjöf og ísingu.
Mynd: Bjðrn Valur Gtslason