Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Blaðsíða 60
Skortur á sjómönnum
Eins og allar aðrar siglingaþjóðir standa Kínverjar frammi fyr-
ir skorti á reyndum sjómönnum. Talið er að þá vanti um 13
þúsund sjómenn til að manna kínverska kaupskipaflotann. Mik-
il áróðursherferð er í pípunum til að gylla ágæti sjómennskunn-
ar í augum kínverskra karla - ég skal ekki segja hver þáttur þar-
lendra kvenna á að verða í áróðrinum.
Harmleikur varð í kjölfar skoðunar bandarisku strandgœslunnar á
bílaskipí.
Skelfileg afleiðing
Eftir að bandaríska strandgæslan hafði framkvæmt skoðun urn
borð í stórflutningaskipinu Celine vaknaði grunur um að oliu
hefði verið dælt í sjóinn í gegnum skilvindur skipsins. Kölluðu
þeir á FBI til að framkvæma rannsókn á grunsemdum sínurn. I
kjölfarið framdi yfirvélstjórinn sjálfsmorð og skipstjórinn var
handtekinn og færður í fangelsi. Þykir mönnum svo komið að
yfirvöld fari með glæpsamlegum hætti gegn sjómönnum.
Ný staða
Vaxandi pappírsvinna um borð í skipum hefur orðið þess
valdandi að aukið vinnuálag bætist á áhafnir skipa og þar verða
þreyttari menn sem sinna sínum störfum. Shell hefur ákveðið
að setja um borð í skip sín pappírs yfirmenn. Verkefni þeirra
um borð verður að sinna allri pappírsvinnu eða að vera eins-
konar skrifstofumenn og verður stöðugildið jafnt þriðja stýri-
manni eða fjórða vélstjóra. Stefnan er að ráða fyrst og fremst
fyrrverandi loftskeytamenn sem hafa GMDSS fjarskiptaréttindi.
Dagleg störf þeirra munu felast í skýrslugerð fyrir aðra yfir-
menn, varðstöðu um réttindi skipverja, launaútreikningum,
vinnutímaskráningu, ruslaskráningu, hættumati og öryggiseftir-
liti. Þá rnunu þeir fá það hlutverk að annast fræðslu og þjálfun
nýrra skipverja.
Stéttarfélög sjómanna hafa fagnað þessari nýju stefnu Shell og
bent á að með því að létta álagi af öðrum yfirmönnum muni ör-
yggi skipanna aukast til mikilla muna.
Neyddur til undirritunar
Tryggingaklúbburinn Gard P&I hefur upplýst að nýlega hafi
skipstjóri á flutningaskipi lent í því að vera kúgaður til að skrifa
undir skjöl af spánskum yfirvöldum. Forsaga málsins er að
skip sem hann stjórnaði varð fyrir vélarbilun og ákvað hann að
halda til hafnar í Ferrol á Spáni. Áður en skipið náði þangað
varð skipið vélarvana og gerði þá eigandi
skipsins samning um aðstoð við björgunar-
aðila. Áður en sá björgunaraðili kom að
skipinu gripu spænsk yfirvöld inn í málið
og neyddu skipstjórann til að taka við
enda frá spænskum dráttarbáti. í>á var
hann í kjölfarið neyddur til að skrifa undir
pappíra sem voru eingöngu á spænsku þar
sem handjárnum og fangelsun var hótað til
að fá undirskriftina.
Olíumengun
Bandaríska strandgæslan hefur á undan-
förnum árum farið offari að mati margra
þegar þeir hafa komið um borð í skip til
skoðunar.
Nýlega var Wallenius skipafélagið sett á
lista yfir vandræðaútgerðir í Bandaríkjun-
um vegna olíu sem fór í sjóinn. Skipa-
félagið, sem hefur aðsetur í Singapúr, ját-
aði sök fyrir dómara en ollumagn i vatni
frá skilvindu var yfir leyfilegum mörkum.
Samþykkti útgerðin 6,5 milljón dollara
sekt. Yfirvélstjóri bílaflutningaskipsins
Atlantic Breeze getur átt von á allt að fimm
ára fangelsi fyrir atvikið en í dómsáttinni
kvað á um að vélstjórinn skyldi mæta fyrir
dómara.
FéCag skipstjómarmanna sendir féíögum
sínmrij öðrum sjómönnum og sjómanna-
fjöískyíáum bestu kveðjur og
hamingjuóskir í tiCefhi sjómannadagsins.
Félag skipstjórnarmanna
Með fagmennsku og færni í fyrirrúmi
Borgartúni 18, 105 Reykjavík
Skipagötu 14, 600 Akureyri
Heimasíða www.officer.is og www.skipstjorn.is
Tölvupóstfang officer@officer.is og skipstjorn@skipstjorn.is
Horfnir farþegar
Það er ekki bara himinn og hamingja að
vera á skemmtiferðaskipum. Á síðustu
tveimur árum hefur verið tilkynnt um
hvarf alls 13 farþegar meðan á ferð skip-
anna stóð. Á sama tímabili er talið að um
10 milljónir farþega hafi ferðast með
skemmtiferðaskipum. Fyrir skömmu hvarf
15 ára gömul stúlka af Costa Magica í Kar-
abíska hafinu.
60 - Sjómannablaðið Víkingur