Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Blaðsíða 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Blaðsíða 56
Nokkrir Egyptar slappa af á bakka Súes. Karmski er einhver þeirrafrá Ismailia, sem er drottning borg- anna við Súesskurð og hreinasta borg Egyptalands, prýdd fögrum byggingum, afarfinum hótelum, mat- sölustöðum á heimsmælikvarða og gróðri svo afber. En þetta var eftir daga de Lesseps því hann andaðist árið 1894. Frægðarsól hans hafði heldur hnigið seinustu æviárin. De Lesseps var nefni- lega ekki búinn að fá nóg af stritinu heldur leitaði hann fleiri ævintýra og fleiri siglingaleiða að búa til. Árið 1881 var de Lesseps kominn til Panama þar sem hann ætlaði að endur- taka stórvirkið á Súesseiði. Sjö árum síð- ar fór fyrirtækið á hausinn og de Lesseps Rökhyggja karlmanna Karlmaður reyndi ákaft að fá for- ræði yfir barni sínu. Þegar málið kom fyrir dómara stóð karlinn á því fastar en fótunum að hann ætti barn- ið en ekki konan. Dómarinn varð hvumsa og kvaðst aðeins hafa heyrt um eitt barn sem svona hefði verið ástatt um en þar hefði það hins vegar verið konan sem ótvírætt átti afkvæmið. Hann væri því ákaflega forvitinn að heyra rökstuðning fyrir annarri eins full- yrðingu sem virtist ganga gegn sjálf- um náttúrulögmálunum. Faðirinn svaraði og kvað fast að: „Herra dómari, ef þú setur 100 krónur í kóksjálfsala þá kemur út kókdós. Hvor á dósina ... þú eða sjálfsalinn?” var dreginn fyrir rétt, ásakaður um fjár- drátt, og sakfelldur. Við sjálft lá að þessi fyrrverandi þjóðhetja í Frakklandi yrði lokuð inni á bak við lás og slá. Á sein- ustu stundu var honum þó forðað frá þeirri smán en sonur hans, sem hafði flækst í málið, sat um tíma í fangelsi og sögðu sumir að hann hefði gerst blóra- böggull fyrir föður sinn. Panamaskurðurinn beið því nýrra manna og nýrrar aldar að verða til. Dauðinn forðaði líka de Lesseps frá því að sjá hugsjón sína, sem hafði verið færð í letur 1888, um ævarandi frelsi allra til að nota Súesskurðinn, fótum troðna. Yopnin tala Fyrri heimsstyrjöldin braust út. Þýskur njósnari var handtekinn í Alexandríu og fundust á honum bæði sprengjur og kort af skurðinum. Tyrkir blönduðu sér í slag- inn og gerðu árás á skipaskurðinn. Það gat því ekki farið hjá þvi að samningur- inn frá 1888 yrði orðin tóm. Pað sama gerðist í seinna stríði. Þjóð- verjum, og bandamönnum þeirra, var meinaður aðgangur að skurðinum. Svo lauk stríðinu. En þá tók ekki betra við, að minnsta kosti ekki í augum Breta. Egyptar létu æ oftar í það skína að Evrópuþjóðir ættu ekkert með að stjórna Súesskurðinum og þeir vildu losna við breska herinn sem gætti skurðarins eins og hópur gritnmra varðhunda. Egyptum blæddi líka í aug- um að Bretar og Frakkar hirtu bróður- partinn af þeim gríðarlega hagnaði sem Súesskurðurinn gaf af sér. Svo kom að því í júlí 1956 að Gamal Abder Nasser þjóðnýtti Súesskurð- inn. Hann hafði þá tveimur árum fyrr lýst Egyptaland lýðræðisríki og sjálfan sig forseta. Nasser ætlaði að nota tekjurnar af skurðinum til að fjármagna hina gríðarlegu Asw- an stíflu. Honum átti þó ekki eftir að verða kápa úr því klæðinu, að minnsta kosti ekki fyrr en all- nokkrum árum síðar. í október 1956 réðust ísraelar inn í landið og Egyptar fóru mjög halloka. Bretar og Frakkar blönd- uðu sér í átökin en stórveldin tvö, Bandaríkin og Sovétríkin, tvistigu og höfðu í hótunum. Það var þó ekki fyrr en að Sameinuðu þjóð- irnar blönduðu sér í deiluna að tókst að bera klæði á vopnin Egyptar héldu yfirráðum yfir Sú- esskurðinum og í apríl 1957 var hann opnaður á nýjan leik fyrir skipaumferð en Egyptar féllust á að greiða fyrrverandi eigendum skurðarins umtalsverðar skaðabæt- ur. Þeir gátu hins vegar ekki með nokkru móti samþykkt að israelsk skip fengju að sigla yfir Súeseiðið en slíkt bann hafði verið í gildi síð- an 1950. í júní 1967 brutust enn út átök á milli ísraela og Araba með þeim afleiðingum að Súesskurðurinn var næstu árin lokað- ur fyrir skipaumferð. Súes-borg var rústir einar eftir loftárásir ísraela og Egyptaland rambaði á barmi gjaldþrots. Tekjur þeirra af skurðinum skiptu meginmáli fyrir af- komu þjóðarbúsins. í þessum hremming- um komu olíuauðug Arabariki Egyptum til hjálpar og greiddu þeim svipaða upp- hæð árlega og þeir hefðu ella haft af rekstri Súesskurðarins. í október 1973 kom enn til átaka þegar Egyptar réðust yfir skurðinn á herstöðvar fsraela á austurbakka hans. Gyðingarnir fóru halloka en tókst þó, furðulegt nokk, að ná fótfestu á vesturbakkanum. Flókin staða kom upp sem mönnum þótti ráð- legast að leysa með samningum snemma árs 1974. í kjölfarið tóku Egyptar, sem réðu nú loksins aftur báðum bökkum Súesskurð- ar, til við að hreinsa skurðinn af sprengj- um og skipsflökum frá því í stríðinu 1967 og nutu til þess aðstoðar banda- ríska sjóhersins. Árið eftir, eða 1975, var Súesskurður- inn opnaður aftur en hann hafði þá verið lokaður fyrir skipaumferð í samfleytt átta ár, eða síðan sumarið 1967. Og allt frani til þessa dags hafa öll skip fengið að sigla um hann óáreitt, líka ísraelsk. Á þessum tíma hafa miklar umbætur verið gerðar á skurðinum, hann breikkaður og dýpkað- ur, beygjur teknar af og nýjar hjáleiðir búnar til. Draumur de Lesseps hefur svo sannar- lega ræst. 56 - Sjómannablaðið Víkingui
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.