Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Blaðsíða 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Blaðsíða 42
Ragnar Hólm Ragnarsson Þáttur af urriðum Hihnar Hansson með drehann mikla sem hannjékk á agnarsmáa púpu í Þing- Falleg veiði úr Ljósavatni 6. maí síðastliðinn. vallavatni 6. mai - og sleppti honum síðan. Nú eru veiðimenn um land allt komn- ir á stjá með stangirnar sínar. Sjó- birtingsveiðin hófst fyrir um tveimur mánuðum og vatnaveiðin víða fyrir mán- uði siðan. Á næstu dögum byrjar veiðin í hverri ánni á fætur annarri en það eru stöðuvötnin sem njóta athygli okkar að þessu sinni. Þar hafa ævintýrin nú þegar víða gerst, eins og vant er þegar menn freista gæfunnar í viðureign sinni við lónbúann. Fyrst örlítill útúrdúr um komandi lax- veiðivertíð. Sumir fúlsa við silungsveiði en vilja einungis lax og aftur lax. Síðasta sumar var þeim einkar hagstætt: Á land komu fleiri stangaveiddir laxar en nokkru sinni fyrr síðan skráning hófst, eða samtals 55.168 fiskar. Það blés því byrlega fyrir reyndum veiðimönnum en ekki síður hinum sem voru e.t.v. að fara í sína fyrstu laxveiðiferð. Því auðvitað hlýtur að vera auðveldara fyrir nýgræð- inga að krækja í nýgenginn lax ef árnar eru smekkfullar af fiski. Þessir veiði- menn ættu allir, bæði byrjendur og lengra komnir, að verða með bros á vör á bökkunum næsta sumar ef marka má spá sérfræðinga Veiðimálastofnunar. Þeir spá því raunar að veiðin verði ekki jafngóð og síðasta sumar - hér um bil ógjörning- ur verði að slá við metinu sem sett var þá - en að samt megi búasl við feiknagóðri veiði. Laxveiðimenn geta því kæst. Risafiskar úr Þingvallavatni Á síðustu árurn hefur urriðastofninn fornfrægi, sem Þingvallavatn og Efra-Sog voru fræg fyrir, verið að ná sér á strik aft- ur. Landsvirkjun hefur lagt talsverða fjár- muni í að rækta upp urriðastofnana með góðutn árangri. Starfsmenn Veiðimála- stofnunar hafa haft umsjón með að hjálpa til með hrygningu þeirra fiska sem eftir voru, unr 124 þúsund urriðaseiðum hefur verið sleppt í vatnið, og nú lætur ísaldarurriðinn svokallaði aftur á sér kræla. Fregnir af stangaveiddum risaur- riðum hafa verið árvissar og þetta eru engir smáræðis fiskar. Fyrir tveimur árum veiddist í vatninu 27 punda urriði, hvorki meira né minna! Series 45 stimpildælur Afl og stýringar fyrir allar þínar vinnuaögeröir. Stimpildælur með breytilega rýmd þar sem þörf er á háþrýstum og öflugum vökvadælum. Series 45 stimpildælur eru í stærðum frá 25 til 147 cm3/snúning. (pSAUER ^DANFOSS 'WUcr.uMf. f**&*tó' ■%+ Gæöi - Öryggi - Þjónusta Danfoss hf Skútuvogi 6 Sími 510 4100 www.danfoss.is 42 - Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.