Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Blaðsíða 10
Ólafur fyrir tveimur árum.
gæti ekki fengið að byrja sem þriðji stýri-
maður og vinna mig upp. Það töldu þeir
af og frá. Skýringin var sú að ég var með
það langan starfsaldur að þeir neyddust
til að borga mér yfirstýrimannskaup, þó
svo að ég væri aðeins þriðji stýrimaður.
Þeir vildu fá stráka nýkomna úr skóla í
það. Ég sló því til og var á olíudallinum í
fjóra mánuði. Við vorum á leiðinni til
Kuwait þegar Saddam Hussein réðist inn
í landið og lágum í margar vikur fyrir
utan Persaflóann. Einn daginn töldum
við um þrjú hundruð súpertankara sem
þarna lágu vegna stríðsins.
í þjónustu H. Folmer
- Eftir þessi ævintýri hélt ég aftur til
Danmerkur og fór að starfa sem stýri-
maður fyrir H. Folmer, danskt útgerðar-
Aðstoð við áfengisinnflutning
- Þegar ég réði mig á írisi Borg var um
það samið að ég ynni í þrjá mánuði en
fengi svo frí í einn mánuð á fullum laun-
um. Skömmu eftir að ég var kominn
heim i fyrsta fríið kom skeyti þar sem til-
kynnt var að búið væri að selja skipið til
Noregs. Ég fékk þriggja mánaða laun
með þökk fyrir gott samstarf. Ég fór nú á
Hofsjökul og var þriðji og annar stýri-
maður þar. Meðan ég var þar reyndi ég
að hjálpa ríkinu að flytja inn svolítið af
brennivíni. Ég var tekinn tvisvar og ját-
aði brot mitt fyrir tollgæslunni. Þetta
voru eilthvað um hundrað lítrar af
vodka. í Bandaríkjunum gat maður ein-
faldlega tekið leigubíl og keypt áfengið í
næstu vínbúð, þetta var svo ódýrt. Hofs-
jökull var æfingastöð lollvarða í mörg ár.
Persaflóastríðið
- Ég var settur í land í kælingu. Þetta
var 1990. Ég ákvað að reyna fyrir mér er-
lendis og hélt til Kaupmannahafnar. Ég
réði mig fljótlega sem stýrimann á 80
þúsund tonna olíudall. Þegar ég kom út
gat ég valið úr jobbum sem yfirstýrimað-
ur á stórum búlkurum. Ég treysti mér
ekki í það í fyrstu og spurði hvort ég
N
Haváng, sem var sænskt, að koma til Malmö en Ólafur var yfirstýrimaður um borð.
Kveðja frá Arafat
- Síðar fórum við á írisi Borg
til ísrael. Við lestuðum appel-
sínur, sem Palestínumenn á
Gasaströndinni ræktuðu. Evr-
ópubandalagið með Hollend-
inga í broddi fylkingar voru að
hjálpa Palestínumönnunum að
koma vöru sinni á markað í
Evrópu og kostuðu flutninginn.
Hollenska sjónvarpið fylgdist
með öllu saman. Kvöldið sem
við héldum úr höfn kom Hol-
léndingurinn sem stjórnaði að-
gerðum til mín og tjáði mér að
Arafat hefði hringt í sig til að
þakka fyrir aðstoðina og hann
hefði sérstaklega beðið að
heilsa skipstjóranum á skipinu
sem flytti appelsínurnar til Evr-
ópu.
Hann varð skrýtinn á svip og spurði
hvort ég væri alveg viss um að ég vildi
halda kyrru fyrir. Þegar ég stóð fastur á
því sagði hann með áhersluþunga: Þú
ræður því, en ég ráðlegg ykkur að vera
ekki mikið á ferli eftir að fer að skyggja
og alls ekki í hvítum skyrtum. Mér þótti
þetta einkennilegt heilræði í fyrstu en
síðar rann upp fyrir mér að auðvitað
væri maður betra skotmark í myrkri ef
hann væri í hvítri skyrtu.
Úr hvaða efni eru taugarnar
á þér?
- Þarna lágum við í eina tvo daga og
ekkert lát á átökum í borginni. Á þriðja
Þessi veiddist i Kyrrahafinu.
degi datt hins vegar allt í dúnalogn og þá
komu hin skipin inn af ytri höfninni
hvert af öðru. Fyrir aftan okkur við
bryggjuna lagðist rússneskt skip. Svo
vildi til að hleðslutækið við loftskeyta-
tækin okkar var bilað svo ég fór um borð
í rússneska skipið eftir aðstoð þar sem ég
vissi að rússarnir voru alltaf með raf-
virkja í áhöfninni. Ég spurði um kaftein-
inn og var leiddur til hans. Hann bauð
upp á kóla og við settumst niður. Hann
horfði á mig þegjandi góða stund en
sagði svo: Já, það er gaman að sjá loksins
þennan fræga mann. Ég spurði í forundr-
an hvað hann ætti við. Ja, þú ert búinn
að vera aðalumræðuefnið á ytri höfninni
síðustu sólarhringana, sagði hann. Menn
skilja ekki úr hvaða efni taugarnar í þér
eru! Þá rann upp fyrir mér,
hvers konar græningi ég hafði
verið. Rússinn og fleiri á skip-
unum á ytri höfninni vissu
hvað stríð var, ekki ég.
10 - Sjómannablaðíð Víkingur