Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Page 12
Hilmar Snorrason
Namibía - ný heimkynni
íslenskra
Fyrri hluti
Það er nokkuð um liðið síðan ég byrj-
aði þessa grein um gömul íslensk
skip. Á sumarmánuðum árið 2003 hélt
ég utan til Namibiu til starfa á vegum
Þróunarsamvinnustofnunar íslands.
Hlutverk mitt var að fylgjast með örygg-
isfræðslu sem fór fram við Namibian
Maritime and Fishing Institute. Stór
hluti starfsins var að fylgjast með verk-
legurn æfingum auk þess að fara um
borð í skip bæði með nemendur og
kennara.
Áður en ég kom til Namibíu hafði ég
vissu um nokkurn fjölda íslenskra fiski-
skipa sem þangað höfðu verið seld og
vonaði ég, skipaáhugamaðurinn, að mér
auðnaðist að líta einhver þeirra augum.
Ég var ekki búinn að vera í marga daga
við störf þegar fyrsta skipið lagðist að
bryggju rétt fyrir neðan skólann en við
hlið skólans var starfrækt mikil skipavið-
gerðarstöð.
Þótt skipið sneri skut í bryggjuna
leyndi sér ekki að hér var kominn einn
af litlu Spánartogurunum svokölluðu.
Nafnið var framandlegt svo og liturinn.
Rolmar Dos var nafnið en sjá mátti glitta
Höfundur með nafn afa síns á björgunarvesti um borð í
namibískum skuttogara.
Eínn morgunn var gamall íslenskur togari við bryggju fyrír neðan skrifstofuna hjá mér.
í upphleypta stafi sem
gáfu til kynna að hér væri
á ferðinni gamli Jón
Vídalín sem á sínum tírna
var smíðaður fyrir Meitil-
inn í Þorlákshöfn.
Jón Vídalín var smíðað-
ur hjá Maritima de Axpe
S.A. í Bilbao á Spáni og af-
hentur snemma árs 1974.
Skipið átti reyndar eftir að
fá nafnið Jón Vídalín II og
Vídalín áður en það var
selt Orchidea Fishing CC í
Walvis Bay í Namibíu.
Einu sinni sem oftar þá
vorum við á æfingum á
léttbát og rak ég þá augun
i nýskveraðan togara sem
ég taldi mig þekkja.
Rennt var í átt að honum
og mikið var nafnið
kunnulegt eða Baldur
Arna. Nafnið fært úr ís-
lenskum búningi með því
að mála yfir eina kommu í
síðari hluta nafnsins.
Baldur Árna var smíðað-
ur hjá Kaarbös Mek. Verk-
sted i Harstad í Noregi
árið 1978 en kom til
Djúpavogs sem Sunnu-
tindur árið 1982. Skipið
fékk nafnið Baldur Árna
árið 1999 og skipti
nokkrum sinnum um eig-
endur áður en það var selt
til Namibíu í ársbyrjun
2003. Nafninu var lítið
breytt eins og sjá má á
myndinni.
Þar skammt frá var ann-
ar gamall nágranni
Sunnutinds sem nú bar
nafnið Etale Star. Sterk-
byggt glæsilegt skip, rautt
að lit, sama lit og prýddi
það hér á íslandi. Fyrra
nafn þess var Kambaröst
en það var smíðað árið
1977 hjá Svolvaer Mek.
Verksted í Svolvaer í Nor-
egi. Nær allan sinn tíma
undir íslenskum fána bar
skipið nafnið Kambaröst
12 - Sjómannablaðið Víkingur