Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Blaðsíða 58
Hilmar Snorrason skipstjóri
PUtan úr
heimi
Indverjar í hættu
Unnið er að því að setja nýjar reglur um tilkynningar á öllum
atvikum sem tengjast indverskum sjómönnum. Ástæða þessa er
að sjálfsvígstíðni, morð og slæm heilsa indverskra sjómanna fer
vaxandi. Indverska siglingamálastofnunin hefur fylgst náið með
ástandi indverskra sjómanna á skipum undir erlendum fánum
og bent á að streita og þreyta hefur aukist til muna vegna fækk-
unar í áhöfnum skipa. Pá hafa indverskir sjómenn horfið við
grunsamlegar aðstæður.
Miklar œfingar hafafariðfram víða um heim i viðleitni til að sigrast á
hryðjuverkamönnum sem hafa hertekið skip.
Snögg æfing
Indónesíski sjóherinn hélt fyrir skömmu gríðarmikla æfingu í
að ráða niðurlögum sjóræningja. Tilgangurinn var að æfa 25
sérþjálfaða hermenn í að frelsa hundruði farþega úr klóm sjó-
ræningja sem hefðu rænt farþegaskipi á Malagasundi.
Fimmtán yfirmenn í hernum léku hryðjuverkamenn sem
höfðu hertekið ríkisferjuna Kelud. Hótuðu þeir að sprengja ferj-
una í loft upp ef félögum þeirra í indónesískum fangelsum væri
ekki sleppt. Um 1400 hundruð farþegar voru um borð í ferj-
unni á æfingunni en það tók sérþjálfuðu hermennina aðeins 20
mínútur að komasl um borð og yfirbuga hryðjuverkamennina.
Vel af sér vikið hjá þeim.
Gámaskór hættulegir?
Ekki er langt síðan að ný gerð sjálfvirkra gámaskóa fóru að
ryðja sér til rúms á gámaskipum og þóttu þeir mikil bylting fyrir
þá sem starfa við lestun og losun gámaskipa. En ekki er allt gull
sem glóir. Rannsóknir á orsökum þess að fjöldi gáma hefur fall-
ið fyrir borð af gámaskipum hafa leitt athyglina að sjálfvirku
gámaskónum. Nú er svo komið að Germanischer Lloyd er tekið
að hvetja viðskiptavini sína til að draga úr notkun gámaskónna
títtnefndu en þeir hyggjast fara út í viðamiklar prófanir á gáma-
skónum um borð í 8000 TEU gámaskipi til að reyna að finna or-
sakir þess að gámar falla svo oft fyrir borð sem raun ber vitni.
Hvalir í hættu
Mesta ógnun hvala í Miðjarðarhafi hafa til þessa verið hval-
veiðimenn og mengun. En nú hefur þriðja ógnin bæst við. Á
ráðstefnu sem nýlega var haldin í Túnis kom fram að 20% land-
rekinna hvala höfðu áverka sem bentu til að skip hefðu siglt á
þá.
Pað er þá heldur betur verkefni fyrir Greenpeace að banna
siglingar um heimshöfin. í Japan er þó tekist á um það hvort
hraðferjan Toppy 4 hafi siglt á hval eða trédrumb undan strönd
Kyushu með þeim afleiðingum að 90 farþegar slösuðust og
margir alvarlega.
Dauðsmannshnappur
Siglingayfirvöld á Bahama og Danmörku ætla að leggja fram
kröfur um að skylt verði að hafa viðvörunarhnapp á stjórnpalli
skipa eða svokallaðan dauðsmannshnapp. Hlutverk hans er að
sjá til þess að þeir sem eru á stjórnpalli séu vakandi við störf
sín.
Kveikja kröfunnar um hnappinn er ásigling gámaskipsins
Karen Danielsen, sem í eina tíð bar nafnið Mánafoss, á Stóra-
beltisbrúna í mars á síðasta ári. En þá lést króatískur yfirstýri-
maður sem talið er að hafi sofnað á stjórnpalli. Áfengismagn í
blóði hans var þrisvar sinnum hærra en leyfileg mörk sögðu til
um.
Bláa frúin
Indverskir brotajárnskaupmenn eru enn sagðir sýna hinu
fræga 76 þúsund tonna skemmtiferðaskipi, Norway, áhuga þrátt
fyrir að asbest sé meðal þess sem fylgir i kaupunum. Mikil
leynd hefur verið á þessum þreifingum indversku brotajárns-
kaupmannanna en skipið, sem nú heitir Blue Lady, liggur nú
fyrir utan höfnina í Port Klang í Malasíu. Þangað kom skipið í
ágúst á síðasta ári og bíður þar örlaga sinna. Niðurrif skipa á
Indlandi hefur sætt miklum árásum frá umhverfissinnum og
menn benda á að niðurrif í Alang sé í andarslitrunum en þessi
staður var um skeið einn sá stærsti í heiminum í niðurrifi skipa.
Stcersta sauðaflutningaskip heims fyrir 25 árum síðan, Al Shuwaikh.
Fyrir 25 árum síðan
Ég ætla hér með að byrja í pistlum mínum að rifja upp hvað
var að gerast hér fyrr á árum. Sagnirnar verða skrifaðar rniðað
við þann tíma sem atburðirnir áttu sér stað.
Fyrir 25 árum síðan gerðist sá atburður að 80 þúsund tonna
norsku tankskipi var breytt til flutninga á lifandi sauðfé. Skip-
ið, sem fékk nafnið A1 Shuwaikh, gat eftir breytingar flutt 125
þúsund sauðfjár og var þar með stærsta sauðaflutningaskip þess
tíma.
Þegar skipið var smíðað kostaði það 8 milljónir dollara en
breytingarnar kostuðu aðeins 20 milljónir dollara. Skipið hefur
14 þilför sem öll eru föst þannig að skipið mun ekki geta flutt
stærri skepnur en sauðfé. A1 Shuwaikh er í eigu kúveisks fyrir-
tækis sem þegar hefur látið breyta smærri tankskipum til sams-
konar flutninga.
58 - Sjómannablaðið Víkingur