Náttúrufræðingurinn - 1932, Blaðsíða 3
NÁTTÚRUPRÆÐINGUKINN l'J3a.
65
Charles Darwín 1809—1882.
Darwin hefir verið talinn merkasti náttúrufræðingur 19.
aldarinnar. Rit hans og kenningar hafa haft óvenju rík áhrif á
rannsóknir manna í ýmsum greinum náttúrufræðinnar á siðari
tímum. Ýmis rit hans sköpuðu aldahvörf í skoðunum manna á
eðli og uppruna lífveranna í heiminum. Beindu mönnum inn
á nýjar brautir í rannsóknum, og hafa gert margt í líffræðinni
skiljanlegt og ljóst, sem áður var torskilið eða óráðin gáta.
Kenningar hans urðu tilefni til þess, að nýjar fræðigreinar sköp-
uðust í náttúrufræðinni, svo sem t. d. ættgengis- og þróunarfræðin,
sem hafa verið viðfangsefni fjölmargra vísindamanna síðustu 50
árin. Það vakti mikla eftirtekt meðal menningarþjóðanna, þegar
bók Darwins, Um uppruna tegundanna (On the Origin of Species)
kom út 1859. Hún varð tilefni' til þess, að fræðimenn skiptust í tvo
5