Náttúrufræðingurinn - 1932, Blaðsíða 9
JJÁTTÚRUFR.
71
Farfaglar og fuglamerkíngar.
i.
Farfuglar og upphaf fuglamerkinga.
Farfuglar, ferðir þeirra og aðrir hættir, hafa frá upphafi
verið uppáhalds-viðfangsefni fuglafræðinga og annarra nátt-
úruvina. Enda er það engin furða, því að hinar reglubundnu ferð-
ir þeirra vor og haust eru tvímælalaust eitt af hinum eftir-
tektarverðustu fyrirbrigðum í lífi fuglanna. Eins og kunnugt er,
yfirgefa fjölmargar fuglategundir heimkynni sín í kaldari lönd-
um á haustin, þegar fer að kólna, og sækja til heitari, oft mjög
fjarlægra, landa. Þegar fer að vora, vitja þeir svo aftur átt-
haga sinna. Kemur þá hver tegund, ár eftir ár, um mjög svip-
að leyti, en komutími hinna ýmsu tegunda er mjög mismun-
andi. Á ferðum þessum fara ýmsir fuglar óraleiðir. Margir,
eins og t. d. allir íslenzkir farfuglar, verða að fljúga yfir út-
höf, o. s. frv.
Menn tóku snemma að gefa ferðum þessara fugla nánari
gaum, og margir hafa fengizt við að rannsaka þær. Árangur
af rannsóknum þessum var þó ekki ýkja mikill, enda höfðu
menn við lítið að styðjast og urðu oft að láta sér nægja getgátur
einar. Það var ekki fyrr en um aldamótin síðustu, eftir að
farið var að merkja fugla, að skriður komst á þetta mál.
Árið 1899 byrjaði danskur menntaskólakennari, Morten-
sen að nafni, á því að merkja fugla. Auðkenndi hann fuglana
með því, að hann festi málmhring með áritun og númeri um
annan fót fuglsins. Á þennan hátt merkti hann t. d. stara, storka,
endur og ýmsa sjófugla. Árangurinn af þessum tilraunum sín-
um tók hann svo að birta jafnóðum. Varð þetta til þess, að
ýmsir fóru að gefa þessum tilraunum gaum, og 1903 byrjuðu
svo Þjóðverjar að merkja fugla fyrir alvöru. Byrjaði svo hver
þjóðin á fætur annarri, og nú er svo komið, að í flestum menn-
ingarlöndum eru fuglar merktir í stórum stíl, enda hefir árang-
urinn, sem þegar hefir fengizt af merkingunum, fullkomlega
sannfært menn um gildi þeirra.
Þessi 30 ár, sem liðin eru, frá því að byrjað var að merkja
fugla í Evrópu, hefir verið unnið ósleitilega. Árið 1927 voru
t. d. í ýmsum löndum Evrópu merktir fuglar sem hér segir: