Náttúrufræðingurinn - 1932, Síða 11
NÁTTÚRUFR.
73
Árangur af þessari 30 ára merkingarstarfsemi er, eins og
þegar hefir verið tekið fram, allmikill orðinn. Menn hafa nú
fengið fulla vitneskju um ferðir, vetrarheimkynni og aðra
hætti allmarga algengra farfugla í ýmsum löndum álfunnar. í
sambandi við þetta hefir og ýmislegt nýtt komið í ljós, sem
menn áður hafði ekki rennt nokkurn grun í. Hér verður þó
ekki farið frekar út í það mál, þó freistandi sé.
II.
Fuglamerkingar á íslandi.
Island er legu sinnar vegna, sem afskekkt og einangruð
eyja fjarri öðrum löndum, mjög vel fallið til í'annsókna á far-
fuglum og ferðum þeirra. Allir þeir fuglar, sem á haustin leita
frá Islandi til heitari landa, verða á leiðum sínum fram og aft-
ur að fljúga all-langa leið yfir úthaf. Dvelja þeir svo vetrar-
langt í þéttbýlum menningarlöndum, þar sem gera má ráð
fyrir, að tiltölulega margir af þeim náist aftur, og um leið er
mikil von um, að árangur verði góður. Einnig má telja víst, að
allmikið af grænlenzkum farfuglum fari vor og haust um ís-
land, þó að enn sé það órannsakað mál.
Árið 1921 voru fyrst merktir fuglar á íslandi. Var það
danskur maður, P. Skovgaard frá Viborg, sem gekkst fyrir
þeim merkingum. Síðan hefir hann haldið áfram að láta merkja
fugla á íslandi. Hefir hann til þess fengið ýmsa menn víðs-
vegar um landið, einkum á Norðurlandi, í lið með sér. Árið
1930, 10 árum eftir að hann hóf merkingarstarfsemi sína,
höfðu fyrir hans tilstilli verið merktir 4464 fuglar á íslandi, og
þar af höfðu 125 náðst aftur. Er það hlutfallslega góður árang-
ur, samanborið við önnur lönd. Hefir Skovgaard sýnt mikinn
dugnað í þessu máli, og á hann þakkir skilið fyrir.
Skulu hér taldir merktir íslenzkir farfuglar, sem náðst
hafa aftur í öðrum löndum, og sagt frá því, hvar þeir náðust.
Er þar farið eftir skýrslu, er Skovgaard gaf um rannsóknir
sínar árið 1930.
1 máríatla (Motacilla a. alba (L.) :
Settist á skip við Rockall hjá Skotlandi og náðist.
2 þúfutittlingar (Anthus pratensis (L.)):
Annar náðist í Belgíu. Hinn skotinn á Spáni.
1 svartbakur (Larus marinus (L.)) :