Náttúrufræðingurinn - 1932, Page 8
70
NÁTTÚRUFR.
Down House.
Down House, þar sem Darwin dvaldi meiri hluta æfinnar og
samdi merkustu rit sín, stendur í fögru sveitahéraði fyrir sunn-
an London, hér um bil 25 km. veg frá Lundúnabrú. Nýlega
hefir enska náttúrufræðisfélagið „British Association for the
Aclvancement of Science“, eignast Down House ásamt meðfylgj-
andi landi. Hefir húsið verið endurbætt í sama formi og það var,
og húsgögn Darwins sett þar í sömu skorður eins og þau voru,
þegar hann bjó þar. — Þangað hefir og verið safnað öllum út-
gáfum af ritum hans. Allmikið land (18 ekrur) fylgir eigninni.
Skiftast þar á grasfletir, garðar, trjáreitir og runnar. Hafa flest
trén, sem þar eru, verið gróðursett af Darwin. Inn á milli trjánna
liggur Sandstígurinn svonefndi (Sand Walk), sem Darwin átti
flestar göngur um, er hann var að velta fyrir sér viðfangsefnum
þeim, sem hann var að rannsaka og rita um í það og það skiptið;
lykur trjálimið sumstaðar alveg yfir hann. Þar þótti Darwin bezt
næði að hugsa um flókin viðfangsefni, og þar hafa án efa mörg
vafaatriði verið leyst, sem skýrt er frá í bókum hans. — Enda
hafa sumir nefnt stíginn „Thinking Path“.
Down Houes er haldið við sem þjóðareign til minningar um
Darwin. Sækir þangað fjöldt ferðamanna árlega, til að sjá heim-
ili þessa nafnkunna manns, sem með rannsóknum og vísindarök-
um umskapaði lífsskoðun manna á síðari helmingi 19. aldar.
G. G. B.