Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 19
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Kristján Lilliendahl, Sólmundur Tr. Einarsson
og Jónbjörn Pálsson
1VÆR SJALDGÆFAR
TEGUNDIR SKJALDKRABBA
(Decapoda) VIÐ ÍSLAND
Skjaldkrabbar (Decapoda) er samheiti yfir þær tegundir krabbadýra
(Crustacea) sem eru einna best þekktar meðal almennings. Innan hópsins
er til dæmis að finna rækjur, humra og það sem í daglegu tali er nefnt
krabbar. Þeim er sameiginlegt að útlimir þeirra eru oftast tíu, eins og
vísindaheitið Decapoda (deca = tíu, poda = fætur) gefur til kynna.
Útlimirnir eru í fimm pörum og á fremsta parinu eru oftast gripklær sem
ekki eru notaðar til gangs. Þær tegundir sem venjulega eru kallaðar
krabbar nota yfirleitt þrjú eða fjögur útlimapör til gangs. Höfundum hafa
borist tvær slíkar krabbategundir sem eru afar sjaldséðar við ísland. Hér
verður gerð grein fyrir þeim, en fundur sjaldgæfra dýrategunda við landið
telst ævinlega til nokkurra tíðinda.
Önnur tegundin nefnist þyrnikrabbi (Paralomis spectabilis, 1. mynd) og er
af undirættbálki Anomura. Hina tegundina nefnum við nornakrabba
(Paromola cuvieri, 2. mynd) og er hún af undirættbálki Brachyura.
Þyrnikrabbi
Heiti og lýsing
íslenska nafnið vísar til útlits
krabbans en hann er alsettur frekar
smágerðum þyrnum eða broddum
ofan á skildi og á útlimum. Vísinda-
heiti krabbans er Paralomis spectabilis
Hansen, 1908.1
Tvö eintök þymikrabbans fengust
þarrn 29. maí 1992 í botnvörpu m/b
Hrafns Sveinbjarnarsonar GK-255
djúpt vestur af landinu (65°25' N,
28°55' V) við veiðar á grálúðu
(Reinhardtius hippoglossoides), á
1190-1370 metra dýP1- Þetta voru
karldýr, annað með 6,1 cm langan
skjöld (trjónan ekki mæld með) og
6,0 cm breiðan, en hitt var með 5,5
cm langan og 5,4 cm breiðan skjöld.
Þriðja eintakið fannst í rannsókna-
verkefninu BIOICE, sem beinist að
kortlagningu botndýra á íslands-
miðum2 (Sýnisnr. 2920). Sá krabbi
var kvendýr með 5,1 cm langan og
5,1 cm breiðan skjöld og veiddist 26.
ágúst 1996 á 1290 m dýpi, á svipuð-
um slóðum og hinir krabbarnir
(65°26' N, 29°08' V, 3. mynd).
Þyrnikrabbi er dökkbleikur eða
ryðrauður og frekar jafnlitur (1.
mynd a). Hlutfallsleg stærð skjaldar
og útlima þyrnikrabba er áþekk
öðrum krabbategundum, en aftasta
fótaparið er falið undir skildinum og
gengur hann því á sex fótum. Á
skildinum ofanverðum eru nokkrir
þymar eða gaddar en á milli þeirra
em smærri vörtur. Skjöldurinn er
þríhyrningslaga því frambrún hans
gengur fram í trjónu. Fremst á trjón-
unni eru þrír hndar og vísar mið-
tindurinn fram og er lítið eitt neðar
en hinir tveir tindarnir sem vísa
fram og em sveigðir upp á við (1.
mynd b). Þyrnikrabbi er eins og
margar aðrar tegundir skjaldkrabba
með tvær öflugar en misstórar grip-
klær. Yfirleitt er hægri gripklóin
stærri en sú vinstri og eru í hægri
klónni tennur sem minna á jaxla (1.
mynd c). Karldýr þyrnikrabbans eru
stærri en kvendýrin eins og algeng-
ast er hjá öðrum kröbbum. Þau dýr
sem hér er fjallað um virðast full-
vaxin. Stærsta eintakið sem Hansen1
lýsti var kvendýr með skjaldarlengd
Náttúrufræðingurinn 73 (3-4), bls. 89-94, 2005
89