Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 50

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 50
Náttúrufræðingurinn Jöklar Flestir skriðjöklar landsins voru á undanhaldi líkt og verið hefur í ein 8 ár, að sögn Odds Sigurðssonar, jöklafræðings á Vatnamælingum Orkustofnunar. Hlaup er í Reykjafjarðarjökli sem skríður til norðurs úr Drangajökli. Framgangur jökulsins var 70 m á árinu eða álíka og í fyrra. Hlaupið hófst 2002. Einnig hefur hlaup í Búrfellsjökli í Svarfaðardal haldið áfram og hefur nú staðið í fjögur ár. Sveinn Brynjólfsson á Dalvík fylgist með framvindunni á Búrfellsdal og á tímabilinu 10. júní til 30. ágúst mældi hann 33 m framskrið þar sem mest var. Greint var frá báðum þessu hlaupum í Náttúrufarsannálnum 2003. Grímsvatnahlaup og Grímsvatnagos I októberlok varð hlaup í Grímsvötnum og í kjölfar þess hófust eldsumbrot. Slík atburðarás hefur ekki orðið í vötnunum í ein 70 ár en á fyrri hluta 20. aldar og á 19. öld urðu nokkrum sinnum hlaup sem virtust hleypa af stað eldgosum. Hlaupsins varð fyrst vart í Skeiðará þann 29. okt. og náði hámarki þann 2. nóv. þegar rennslið fór í 3300 m3/sek. Hinu eiginlega hlaupi lauk síðan 3. nóv. en drjúgum meira rennsli var þó í ánni lengi eftir hlaup en verið hafði fyrir það. Heildarmagn hlaup- vatnsins varð um 0,8 km3 að mati Vatnamælinga Orkustofnunar. Eldgosið hófst að kvöldi 1. okt. meðan enn var að vaxa í Skeiðará. Gosið kom ekki á óvart því ýmiss konar forboða hafði orðið vart, t.d. landriss sem benti til aukins kvikuþrýstings í kvikuhólfinu undir Grímsvötnum. Skjálftavirkni hafði einnig vaxið um mitt ár 2003 og færðist í aukana síðustu vikurnar fyrir gos. Jarðhiti virtist líka fara vaxandi. Snörp skjálftahrina hófst þremur tímum áður en eldsins varð vart en það var um kl. 22. Eftir það mældist samfelldur gosórói. Eldurinn kom upp í suðvesturhorni Grímsvatna en þar opnaðist gossprunga sem bræddi 900 m langan og 700 m breiðan ketil í jökulísinn. Auk hans mynduðust sigdældir þar hjá sem þóttu merki um eldsumbrot undir ísnum. Talsverð sprengivirkni var í goskatlin- Sprunginn jaðar Búrfellsjökuls 10. júní2004. Ljósm.: Sveinn Brynjólfsson. um og mökkurinn reis í allt að 13 km hæð með ösku- burði til norðurs. í goslok var komin falleg gígeyja, umlukin mórauðu bræðsluvatni, í jökulkatlinum. Þetta gos verður að teljast í hópi hinna smærri Gríms- vatnagosa en rúmmál gosefna er áætlað minna en 0,1 km3. (Byggt á greinum Magnúsar Tuma Guðmunds- sonar og Freysteins Sigmundssonar í Jökli 2004 og Sverris Elefssonar í Fréttabréfi JÖRFÍ feb. 2005.) Jarðskjálftar Engir stóratburðir urðu á skjálftasviðinu árið 2004. Stærstu skjálftar ársins voru um 4,0 stig. Þeir voru tveir, annar suðvestur af Geirfugladrangi þann 13. apríl en hinn á Reykjaneshrygg um 80 km frá landi, en þar hófst stutt en snörp hrina að kvöldi 25. september. Virknin undir vestanverðum Mýrdalsjökli, sem hófst 1999, hélt áfram og hélst lítt breytt út árið en þó var eins og drægi úr henni í árslok. Mikil smáskjálftahrina varð undir Fagradalsfjalli um 9 km norðaustan við Grindavík 21.-22. júlí. Þegar virknin var mest mældust 1-2 skjálftar á mínútu. Skjálftarnir voru smáir, allir innan við 2,5 á Richters- kvarða. Á árinu var nokkur skjálftavirkni í Guðlaugs- tungum 20 km norður af Hveravöllum og varð mest þann 1. okt. en þá varð skjálfti þar af stærðinni 3,3. Grímsvatnagos 2. nóvember 2004. Ljósm.: Freysteinn Sigmundsson. Hlaupferill Skeiðarárhlaups haustið 2004. Páll Jónsson á Vatnamælingum Orkustofnunar gerði myndina. 120
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.