Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 35
Anna Guðrún Þórhallsdóttir
og Hrefna Sigurjónsdóttir
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
H E STAR
OG SKYLDAR TEGUNDIR
Uppruni, þróun og atferli
Áhugi á hestum hefur aukist mjög á undanförnum árum og áratugum. Nú
eiga fjölmargir aðrir en bændur og búalið hesta og hafa mikla ánægju af að
umgangast þá. Flestir þéttbýlisbúar sem eiga hesta hafa mest samskipti við
þá á húsi á vetrum, en mikil irtnivera og þröngar stíur í húsunum valda því
að tækifæri hrossanna til innbyrðis samskipta eru lítil. Fáir hestaeigendur
eiga þess kost að fylgjast náið með hestum sínum frjálsum í haga að
sumrinu, þar sem náttúrulegt atferli þeirra kemur í ljós, bæði félagslegt
atferli og atferli tengt fæðuöflun. Hestar eru félagsverur og eiga sér mikið
og flókið samskiptakerfi sem hefur þróast í þúsundir ára. Þeir eru einnig
langlífir og eins og hjá öðrum langlífum félagsverum er nám mikilvægur
þáttur í atferli þeirra. Fæðuöflun og fæðuval þeirra er afleiðing flókinnar
þróunar sem byrjaði fyrir um 55 milljón árum.
cm á hæð og 60 cm á lengd, með
fjórar tær á framfótum og þrjár tær á
afturfótum (1. mynd). Frá hinum
smáa Eohippus þróuðust fjölmargar
ættkvíslir sem lifðu í milljónir ára
um allt norðurhvel jarðar. Á míósen,
fyrir 10-12 milljón árum, dóu allar
ættkvíslirnar út í Evrópu og Asíu en
lifðu og þróuðust áfram í N- og S-
Ameríku. Þegar flest var, fyrir um 14
milljón árum, voru 13 ættkvíslir
Equidae samtímis í N-Ameríku.1
Fyrir marga hestaeigendur getur
verið áhugavert að kynnast
uppruna og þróunarsögu hest-
anna og náttúrulegu atferli þeirra, til
að skilja betur þá skepnu sem þeir
eiga svo mikið samneyti við. Með
þessari samantekt vonumst við til að
gefa lesendum innsýn í þennan heim.
Með betri skilningi eigenda á
náttúrulegri hegðun hrossa ættu
samskiptin að verða ánægjulegri,
báðum aðilum tii hagsbóta.
Uppruni
Forveri hinna fjölmörgu tegunda
sem tilheyrt hafa hestaættinni
(Equidae) var Hyracotherium eða
Eohippus sem var uppi fyrir um
55-45 milljón árum (eósen). Eohippus
var á stærð við lítinn hund, um 20
1. mynd. Eohippus. Eitthvað pessu líkt halda sérfræðingar að fyrstu forfeður hesta-
ættarinnar hafi litið lít. - The oldest memher of the family might have looked like this.
Teikning: Joe Tucciarone, birt með leyfi höfundar.
Náttúrufræðingurinn 73 (3-4), bls. 105-116, 2005
105