Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 37
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
3. mynd. Hellarista sem sýnir nokkrar gerðir villihesta. Myndirnar ristu krómagnon-
menn fyrir um 17 þúsund árum í hinum fræga Lascaux helli í Dordogne héraði í
Suðvestur Frakklandi. - Pre-historic painting by Cro-Magnon men of different horses
in thefamous Lascaux cave in South-west ofFrance.
afríkuasninn frá og síðan hinar sebra-
tegundirnar. Asíuasninn greindist
síðast frá hinum eiginlegu hestum
og er því skyldastur þeim. Stutt er
síðan asíuasnarnir klofnuðu í teg-
undirnar tvær, eða 250-500 þúsund
ár11 (skiptar skoðanir um hvort þetta
séu í raun tvær tegundir).
Allir ræktaðir hestar og villihest-
arnir, þ.e. takhi-hesturinn og tarpan-
hesturinn (sjá hér að neðan) eiga
sameiginlegan forföður. Lengi var
sú skoðun viðtekin að takhi-hestur-
inn væri forfaðir ræktaða hestsins
eða að ræktaði hesturinn væri
kominn af sambærilegum evrópsk-
um villihesti sem hefði verið til en
breyst við ræktunina. Rannsóknir á
kjamsýrum hvatbera sýna hinsvegar
að þessar hugmyndir eiga ekki við
rök að styðjast. Takhi-hesturinn er
sértegund og em ræktuðu hestarnir
ekki afkomendur hans.10,11 Einnig
hafa þessar rannsóknir sýnt að
uppruni ræktaða hestsins er mun
flóknari en áður hefur verið talið.10,12
Evrópski villihesturinn og hinir
ræktuðu hestar
Fjölmörg mismunandi hestakyn, allt
frá hinum smáa hjaltlandshesti (150
kg) til stórra dráttarhesta eins og
„shire"-hestanna (1000 kg), hafa
verið ræktuð í gegnum tíðina. Hest-
um er yfirleitt skipt í hesta (tme
horses) annars vegar og smáhesta
(ponies) hins vegar. Talið hefur
verið að muninn á milli þessara
kynja megi rekja til seinni tíma
ræktunar og umhverfisaðstæðna,
þar sem smáhestamir eiga frekar
uppruna sinn á norðlægari og
kaldari slóðum.
Það hefur einnig verið talið að
hinn ræktaði hestur hafi fyrst komið
fram á sléttum Mið-Asíu, sérstak-
lega í Ukraínu, fyrir nokkrum ár-
þúsundum og að allir ræktaðir
hestar séu af sama uppruna.13 Sam-
kvæmt þessari hugmynd dóu öll
villt afbrigði hesta í Evrópu og Asíu
út, að undanskildum takhi-hestin-
um, og afkomendur þeirra er þá að
finna í ræktaða hestinum. Budi-
ansky13 vekur athygli á að margt
bendi til þess að hestar hafi þegar átt
undir högg að sækja er maðurinn
kom fram á sjónarsviðið, trúlega
vegna breyttra náttúrufarsskilyrða.
Því megi líta svo á að með ræktun-
inni hafi maðurinn í raun bjargað
hestinum frá útrýmingu, sem sé
vissulega sérstakt í samskiptasögu
manns og náttúru.
Nýlegar hvatberarannsóknir koll-
varpa tilgátunni um einn og sama
uppruna ræktaðra hesta. Rannsókn-
irnar sýna að uppruni ræktaða
hestsins er mun flóknari en svo að
rekja megi hann til eins staðar og
tíma, sem gerir hestana ólíka öðrum
húsdýrum sem hafa mun einsleitara
erfðaefni.10,12,14 Samkvæmt rann-
sóknum Jansen o.fl.10 virðast 77
hryssur með ólíkar arfgerðir vera
formæður ræktaða hestsins, sem
bendir til mismunandi uppruna og
sérstakra erfðahópa (stofna) sem
mismunandi kyn eiga ættir að rekja
til. Norðurevrópskir hestar mynda
t.d. einn slíkan erfðahóp. í honum
eru ásamt íslenska hestinum hjalt-
landshesturinn, norski fjarðahestur-
inn, exmoor-hesturinn og skoski
hálandahesturinn. Connemara-hest-
urinn frá Irlandi er einnig náskyldur
þessum hestum. Sameiginlegur for-
veri þessara hesta er í mesta lagi 8
þúsund ára gamall og jafnvel ekki
meira en 1500 ára.10 Arabískir hestar
mynda einn erfðahóp og eru þeir
sér á báti, og hestar frá Pýrenea-
skaganum og N-Afríku, ásamt
amerísku mustang-hestunum, mynda
annan erfðahóp.
Um aldir hafa verið sögusagnir
um tilveru fornhesta á nokkrum
stöðum í Evrópu. Þessar sagnir eiga
það sameiginlegt að telja að ákveðnir
stofnar hesta séu leifar af fornum
villihestum Evrópu. Niðurstöður
rannsókna á hvatberum erfða-
efiúsins sýna að þessar gömlu sagiúr
eiga sér mun meiri stoð í raun-
veruleikanum en margir hafa talið.
Einn þessara stofna er sorraia-
hesturinn frá Portúgal sem stundum
hefur verið talinn forveri spænskra
107