Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1999, Blaðsíða 52

Náttúrufræðingurinn - 1999, Blaðsíða 52
11. mynd. Skýríng Roberts Chambers á því bvernig lesa mætti þróun lífveranna úr fósturþroskun þeirra. Fóstur allra fjögurra flokka hryggdýra (froskdýr voru þá talin með skriðdýrum) þroskast eins þar til stigi A er náð. Þar greinist fiskurinn frá og þroskast eftir sinni braut. Skriðdýr, fugl og spendýr þroskast eins að stigi B, þegar skriðdýrið fer sína leið. Fóstur fugls og spendýrs eiga samleið að stigi C, þar sem leiðir skiljast. (Oldroyd 1983.) mynd). Loks benti hann á augljós líkindi með líkamsgerð flestra hryggdýra, líkindi sem Goethe og félagar hans röktu til einnar grunnhugmyndar en Chambers skýrði út frá sameiginlegum uppruna. Sitthvað mátti að röksemdum Chambers finna en rit hans vakti andstöðu langt umfram faglegt tilefni. Virtur jarðfræðingur í Cambridge, Adam Sedgewick (1785-1873), lýsti hneykslan sinni svo: Ef þetta er satt, þá eru yfirveguð fræðastörf unnin fyrir gýg, grundvöllur trúarinnar lygi, lög mannanna glópskuverk og argasta óréttlæti, siðgæðið óráð 'eitt, allt sem vér höfum gert fyrir svertingja í Afríku verk vitfirringa og karlar og konur einungis æðri dýr! (Tilvitnun sótt í Oldroyd 1983, bls. 55.) Samt hefur Chambers líklega vakið Breta til umhugsunar; í það minnsta hrósaði Dar- win honum fyrir að hafa eytt fordómum og búið með því í haginn fyrir viðtöku svipaðra skoðana. Herbbrt Spencer Hér er rétt að geta þess að hugmyndir um þróun, sem vart verða þó taldar heilsteypt kenning, birtust á Bretlandi í ritum enska heimspekingsins og félagsfræðingsins Her- berts Spencers (1820-1903) áður en Darwin og Wallace birtu kenningu sína. Spencer taldi að erfðir áunninna eiginleika stýrðu þróuninni, en féllst síðar á kenninguna um val náttúrunnar og mun vera höfundur slag- orðsins um „framgang hinna hæfustu“ (sur- vival of the fittest). Spencer leit á þróun sem framsókn, alls- herjarleitni alls íþessum heinti til flóknara og markvissara ástands. Hann einskorðaði hugmyndir sínar um þróun engan veginn við lífheiminn; samfélag manna laut að hans mati sömu lögmálum. Rétt eins og líkami manns, sem einkennist af samhæfingu og sérhæfingu mismunandi parta, hefur þróast af líkama einfrumungs, þannig þróast stórfyrirtæki, með útibúum er lúta stjórn aðalstöðvar, af óskiptu smáfirma. Darwin setti þróuninni aldrei neina „stefnu“ eða „markmið". Hann felldi sig ekki við afleiðsluröksemdafærslu Spencers, þar sem niðurstaðan er fólgin í forsendunum, og kveðst í sjálfsævisögu sinni ekki sjá að hann hafi nokkru sinni sótt nokkra hugmynd til Spencers. (Siá skýringar á bls. 211 hjá Oldroyd 1983.) 194
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.