Náttúrufræðingurinn - 1999, Blaðsíða 113
kaffihlé austur að Skeiðarárbrú. Þar var
staldrað við og skoðuð flóðför og önnur
ummerki hlaupsins. Gisting var í Freysnesi,
en sumir gistu í Bölta í Skaftafelli. Oddur
Sigurðsson hélt um kvöldið myndasýningu
um hlaupið í Freysnesi við ágætar undir-
tektir viðstaddra.
Sunnudaginn 20. apríl varáfram bjartviðri
og þurrviðri, heldur svalara en daginn áður
(4-5°C) og rak á hviður í norðanáttinni, þó
að nánast væri logn á milli. Rauk og fauk
fíngert hlaupsetið mjög í hviðunum og
bauðst þar smjörþefurinn af fokmistri því í
lofti og fínefnadreif á jörð sem fylgdi í kjölfar
hlaupsins. Um kl. 10 var haldið inn að
Skaftafellsbrekkum við Skeiðará og skoðuð
flóðför og rofsár eftir hlaupið. Hádegishlé
var í Freysnesi, en svo var farið vestur á
sand og að Sandgígjukvísl. Þar var skoðað
bráðnandi stórjakahrönglið á og í sandinum
og ummerkin um útgröft hins nýja, djúpa og
breiða hlaupfarvegar að kvíslinni. Af
sandinum var svo haldið suður, með við-
komu á Klaustri, Vík og Hvolsvelli, en til
Reykjavíkur var komið upp úr kl. 18 um
kvöldið. Þátttakendur voru hinir ánægðustu
með förina, enda viðfangsefni skoðunar,
veður og leiðsögn með inestu ágætum.
Fuglaskoðunarferð um Reykjanesskaga
Árleg fuglaskoðunarferð um Reykjanes-
skaga í samvinnu við Ferðafélag Islands var
farin laugardaginn 10. maí. Leiðbeinendur
voru hinir fuglafróðu menn Gunnlaugur
Pétursson og Hallgrímur Gunnarsson. Ferð-
in tókst mjög vel þrátt fyrir rysjótt veður og
nokkuð hvasst. Ferðafélagið sá um
fararstjórn, en þátttakendur voru 36 talsins.
Langa ferðin í Skagafjörð
Langa ferð HÍN var farin í Skagafjörð 24.-27.
júlí. Þátttakendur voru 43 talsins og var farið
á einum bíl frá Guðmundi Jónassyni.
Leiðsögumenn voru Eyþór Einarsson,
grasafræðingur, og Árni Hjartarson, jarð-
fræðingur (laugardaginn 26. júlí), auk
framlags fararstjóranna og jarðfræðinganna
Freysteins Sigurðssonar og Guttorms
Sigbjarnarsonar. Veður var yfirleitt hagstætt
og þótti ferðin takast injög vel.
Fimmtudaginn 24. júlí var lagt upp kl. 9 frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík. Veður var
sæmilegt, lofthiti 12-15°C, skýjað og dropa-
fall annað veifið norður í Hrútafjörð en
þaðan af sæmilega bjart, hægt og milt.
Staldrað var við í Borgarnesi en hádegishlé
var gert við Staðarskála. Farið var þaðan
aftur um kl. 13, ekið út á Vatnsnes og
staðnæmst í Hindisvík, þar sem skoðaðir
voru berggangar, útstrandar- og fjöru-
gróður, selir og sögulegar byggingar. Næst
var staðnæmst við dranginn Hvítserk og
gengið þar niður í fjöru. Þaðan var farið um
Vesturhóp og inn að Borgarvirki. Gengið var
á virkið og það skoðað, auk þess að njóta
útsýnisins. Einkum var litið á jökulmótun
landslags í vatnsrásum, hólum og söndum.
Kaffihlé var svo tekið inni í Víðihlíð í Víðidal,
en þaðan var farið upp úr kl. 16 og austur í
Vatnsdalshóla, sem litið var á lauslega og
rætt um líklegan uppruna þeirra. Til Varma-
hlíðar í Skagafirði var komið upp úr kl. 19 um
kvöldið og þar tekin gisting til þriggja nátta.
Föstudaginn 25. júli varveður hægt, norð-
læg gola, lofthiti um 15°C, skýjað og þoku-
ruðningur en þurrt að kalla, sólarlftið framan
af degi en birti til undir kvöld. Lagt var upp
um kl. 9 og haldið út á Skaga. Komið var við
á Sauðárkróki en svo staðnæmst utan Sel-
víkur og skoðaður útskagagróður. Aftur var
staðnæmst við Ketubjörg og þau skoðuð,
fuglalíf þar og gróður. Áfram var haldið út
fyrir Skaga og litið á fjörumyndanir og
útstrandagróðurfar í leiðinni. Undir hádegi
var komið í Kálfshamarsvík og þar gert
hádegishlé. Þar voru skoðaðar fjörumalir,
strandmýra- og fjörukambagróður, stuðla-
bergsklappir, eyðibyggingar og aðrar mann-
vistarleifar. Frá Kálfshamarsvík var farið inn
á Skagaströnd og litið inn á Kántrýbæ Hall-
bjamar Hjartarsonar. Komu þar a.m.k. sumir í
fyrsta sinni og prísuðu sig seinna sæla að
hafa augum litið þann sögufræga stað, eftir
að húsið brann árinu síðar. Farið var þaðan
inn um Refasveit og Langadal og aftur í
Varmahlíð. Eftir stutt hlé þar var lagt aftur
upp og farið út á Reykjaströnd og út að
Reykjum. Þar tók Jón Eiríksson, Drangeyjar-
jarl, á inóti hópnum, ferjaði hann og
leiðsagði út í Drangey. Fóru 22 út í eyjuna
255