Náttúrufræðingurinn - 1933, Síða 17
NÁTTtTRUFR.
11
til rifja að sjá fram á tortímingu hans — og máske þess vegna
verið fíknari í að kynnast honum en ella — að sama skapi
gladdist eg við að lesa grein í „Der deutsche Pelztierziichter"
nýverið, þar sem maður á mínu reki, þ. e. hlutlaus áhorfandi
og jafnframt náttúruvinur, lýsir elzta og fullkomnasta bjóra-
búi á Þýzkalandi. Eg skal ekki þreyta með að fara lengra út í
það mál hér.
Eg má þó aðeins bæta því við, að eg þóttist sjá fram á,
að við hér mundum geta auðgað okkar fátæka dýralíf með
þessum merkilega kjörgrip úr dýraríkinu, en út í það mál skal
bteldur ekki farið lengra að þessu sinni.
Ársæll Ármson.
Svífið t síóntim.*
Öllum þeim verum, sem í sjónum lifa, má skipta í þrjá
mikla flokka, eftir því, hvaða afstöðu þær hafa tekið til sjávar-
ins, ef svo má að orði kveða.
1. Botnverur nefnast allar þær lífverur, sem ala aldur
sinn á mararbotni. Þar má gera greinarmun á plöntunum,- eða
þörungunum (þarar og þang) og þeim örfáu blómplöntum, sem
vaxa á botni sævar við strendurnar, og þeim mikla fjölda dýra,
sem skríður um botninn (t. d. krabbarnir), hefst við á steinum
(t. d. hrúðurkarlinn) eða grefur í botninn (t. d. fjörumaðkur-
inn).
2. f annan flokk sævarbúa kemur allt það, sem syndir
um í sævardjúpinu, þannig að straumhreifinga sjávarins gæt-
ir hlutfallslega lítið í samanburði við framdráttarafl líkamans.
í þessum flokki eru auðvitað einungis dýr (fiskar, hvalir, sel-
ir og sækýr).
3. Þriðji lífveruflokkurinn í ríki Ægis, og um leið sá þýð-
ingarmesti, er svifið (Plankton). Til þess teljast allar þær líf-
verui-, sem lítið geta hreyft sig, en berast því mest fyrir straum-
um. Þegar um svif er að ræða, má gera greinarmun á svifdýrum
og svifplöntum. Úr ríki plantnanna eru aðallega þrír flokkar í
svifinu, nefnilega: Gerlar, sundþörungar og kísilþörungar.
Af gerlum (Bacterium) er býsna mikið í sjónum, en miklu
Allar myndirnar í þessari grein, liefir Dr. Taaning lánað blaðinu.