Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1933, Qupperneq 3

Náttúrufræðingurinn - 1933, Qupperneq 3
NÁTTÚRTJFKÆÐINGURINN 1933 JgJ Kampaflóin. Kampafíóín. Kampaflóin heitir á vísindamáli Petrobius brevistylis (Car- penter). Hún er útbreidd um vesturströnd Evrópu og’Norðurlönd, svo sem: N.-Frakkland, Pommern, Danmörku, Svíþjóð (líklega í Noregi), England, Færeyjar og ísland. Kampaflóin er mógrá að lit, með greinilegum málmgljáa, sem stafar af fíngerðu hreistri, er þekur líkama dýrsins. Hreistr- ið missir gljáann eða dettur af ef dýrið er geymt í spíritus. Það er ummyndað hár, líkt og á vængjum fiðrildanna. Vaxtarlag kampaflóarinnar er þannig, að bolurinn er nærri sívalur, þó kúptari að ofan en neðan. Gildastur er hann um miðjuna og getur orðið allt að 1,5 sm.1) á lengd, auk fálmara, sem eru samsettir af ákaflega mörgum iiðum og lengri en bol- urinn. — Aftan á dýrinu eru þrjár „svipur“, sem einnig eru samsett- ar af mörgum liðum. Miðsvipan er þroskuðust og fullkomlega líkamslengdin, en hliðarsvipurnar eru um þriðjungi styttri og miklu veigaminni. Bolurinn er settur saman úr fjórtán liðum. Höfuðið er einn, frambolurinn þrír og afturbolurinn tíu liðir. Að ofan er höfuðið nær hulið af augunum, sem eru samsett af 400—500 smáaug- um. Neðan á höfðinu er munnurinn, það er ,,bitmunnur“ iíkur og á kakalökum. Kampaflóin hefir sex fætur eins og önnur fullvaxin skor- 3) Hér er miSað við þau dýr, sem eg hefi haft til athugunar, en það eru dýr frá öllum fundarstöSum liér á lándi, sem mér eru kunnir, nema Vík og Vestmannaeyjum. 11

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.