Náttúrufræðingurinn - 1933, Blaðsíða 28
186
náttC
Stóra fískíönd.
Seint í ágústmánuði var eg staddur austur við Sogsbrú. Sá.
eg þá fugl þar, sem eg í fyrstu hélt að væri lómur, þó ótrúlegt.
væri, þar eð þrír ungar fylgdu þessum fugli (en lómarnir eiga
ekki nema tvo unga), en lit sá eg ekki á honum, vegna þess að;
hann bar á milli mín og sólar. Með því að taka á mig all-langan
krók, og komast suður fyrir fuglana, komst eg í allgóða aðstöðu
til þess að geta skoðað þá, einkum af því að eg var með átt-
falt stækkandi prisma-kíki.
Sá eg þá, að þetta myndi vera stóra fiskiönd (Mergus
merganser), þó eg ekki hefði séð hana áður. Hún er með há-
rautt nef og rauðbrún á höfði og dálítið niður á hálsinn. Hún
er sögð ísgrá á bakið, en mér virtist hún gulleit. Þá voru ung-
arnir ekki síður fallegir, einhvern veginn köflóttir, en ekki
treysti eg mér til þess að lýsa þeim. Meðan eg athugaði þessa.
fugla, stungu ungarnir sér aldrei, en syntu meðfram landinu og
kroppuðu eitthvað þar upp úr vatninu, sem sat á steinunum,.
ef til vill flugulirfur. Öndin kafaði einu sinni, en ekki kom hún
upp með neitt. Þegar eg kom heim, sá eg í fuglabók, að stóra
fiskiönd er aðeins einum til tveimur centimetrum styttri en
lómurinn.
Ó. F.
Árangur ísíenzkra fttglamerkínga.
IV.
Erlendis hefir spurzt um:
TJrtönd, merkt við Húseyjarkvísl í Skagafirði 6. ágúst 1933.
Skotin hjá Baldwinstown í Wexfordsýslu á írlandi þ. 15. nóv-
ember s. 1.
Urtarungi merktur hjá Grímsstöðum við Mývatn 26. júní
1933. Skotin 15. nóvember 1933 hjá Ballynahinch (?) í Downs-
sýslu á Norður.írlandi.
Skúfönd, merkt á hreiðri á Grímsstöðum við Mývatn þann
14. júní 1933. Skotin á Loch Ennel í Westmeathsýslu á írlandi
þann 26. nóv. 1933.