Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1933, Side 5

Náttúrufræðingurinn - 1933, Side 5
NÁTTÚRUFR. 163 Næst fannst kampaflóin í Vestmannaeyjum. Sænskur skor- dýrafræðingur, C. H. Lindroth, tók þar 2 kvendýr 8. september 1926 í Klettasprungu við sjó sunnan á Heimaey. Sami maður fann hana aftur í Vík í Mýrdal í sprungu í Víkurkletti, um 400 m. frá sjó, þann 25. júlí 1929, 1 karldýr, 1 kvendýr og 4 dýr hálfvaxin. Á ferðum mínum um Austur-Skaftafellssýslu sumarið 1932 fann eg kampaflóna á þessum stöðum: Á Klifatanga við Skarðsfjörð í Hornafirði 19. júlí, 1 karl- dýr og 1 kvendýr. Rétt ofan við fjöruna i stórgrýti og kletta- sprungum. Milli Almannaskarðs og Dynjanda, tók eg 26. júlí, 1 karl- dýr og 3 kvendýr í snarbröttum, stórgrýttum, gróðurlausum fjallaskriðum, og varð dýrsins var víða um skriðurnar. Framan í Bergárdalsheiði 21. júlí tók eg 12 karldýr og 22 kvendýr. — Var ákaflega mikið af kampaflónni á stóru svæði neðan frá láglendi og upp undir heiðarbrún, þar sem þær voru skríðandi á sléttum klettabeltum þegar hlýtt var og mjög gæfar. En niðri í urðunum var erfitt að handsama þær .Þær stökkva svo fljótt milli steina, og eru sem örskot úr einni holunni í aðra, svo maður festir varla auga á þeim. í urð ofan við Rímavatn í mynni Laxárdals, 16. júlí, 3 karl- dýr, 3 kvendýr og 2 hálfvaxin dýr. Á Hoffelli í Hornafirði tók eg 29. júlí 1 karldýr og 1 kven- dýr og sá all-mikið af kampaflónni í skriðum ofan við túnið. í Kráksgili, sem er um tvo km. í norðvestur frá Hoffelli, voru nokkur dýr í gróðurlausri skriðu móti norðvestri. Frá austasta fundarstað kampaflóarinnar í Hornafirði og til þess vestasta eru um 23 km. Hæð fundarstaðanna í Hornafirði yfir sjó, er mjög lík, að undanteknum fundarstaðnum við Skarðsfjörð, sem er rétt ofan við fjöruna. Fundarstaðirnir eru allir í hér um bil 40—50 metra hæð og þar yfir, sumir ná upp í 150 m. hæð yfir sjó. Það er eftirtektarvert, að fundarstaðir þessir eru rétt ofan við forn sjávarmörk. Liggur því sú skýring beint við, að kampa- flóin sé þarna eftirlegukind frá þeim tíma, er allt undirlendi í Hornafirði var á sjávarbotni og fjörurnar þar, sem fjallaskrið- urnar eru nú. Fundarstaðir þessir eru mjög mismunandi langt frá sjó. — Lengst frá sjó er Kráksgil, um 13 km. Þá hefir Sigurður Björnsson á Kvískerjum, sem safnar fyrir 11*

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.