Náttúrufræðingurinn - 1933, Síða 6
164
nattOrufr.
mig skordýrum í öræfum, athugað Salthöfðann hjá Fagurhóls-
mýri, sem er 66 m. hár og nærri 2,5 km. frá sjó. Fann hann þar
22. júní 1933 3 karldýr, 31 kvendýr og 4 óþroskuð dýr (2 hálf-
vaxin og 2 aðeins 2—3 mm. löng).
Erlendis hefir kampaflóin ekki, svo mér sé kunnugt, fund-
ist nema við sjó.
Að síðustu fann eg hana í Stykkishólmi 6. ágúst 1933.
Var hún í stórgrýtis urð við sjóinn austan við kauptúnið, 1 karl-
dýr og 1 kvendýr.
Mjög er sennilegt, að kampaflóin sé víðar á landinu, en þeg-
ar er kunnugt. Væri mér kært, ef allir þeir, sem fyndu hana á
nýjum stöðum, sendu mér nokltur eintök í spíritus og gæfu mér
greinilegar upplýsingar um fundarstaðinn.
Geir Gígja.
Fáséðír ftígíar.
I haust hefir verið óvenjuhlýtt í veðri og stórviðri af A og
S hafa oft farið yfir landið. Hefir því „blásið byrlega“ fyrir far-
fugla úr nágrannalöndum vorum fyrir austan oss og suðaustan,
til þess að berast hingað, eða öllu heldur hrekjast hingað, eins
og oft ber við endranær á þessum tíma ársins. Haustið, sem nú
er að líða, hefir líka eflaust verið nokkuð margt um íugla-
ferðir hingað af þessu tæi, þó að fáar skýrslur séu um það. Eg
hefi heyrt talað um, að bláhrafn (,,Færeyja-hrafn“) hafi sýnt
sig í hóp fyrir „austan fjallið“, o: í Árnessýslu neðanverðri og
jafnvel hérna megin við það, o: í Mosfellssveitinni. Nefndir
hafa líka verið svartir smáfuglar (starar eða svartþrestir?),
sem hafi sést, en þeir eru annars tíðir gestir.
En svo hafa líka sýnt sig hér fáséðir, eða áður óséðir, gest-
ir, og skal þeirra getið hér stuttlega. Fyrst má telja s. n.
Nátthrafn (Caprimulgus evropæus, L.). Hann náðist lif-
andi hjá Nýjabæ undir Eyjafjöllum, c. 25. okt. í haust, en lifði
ekki lengi og var sendur Náttúrugripasafninu, og er þar til sýn-
is. Þessi fugl á heima víða um Evrópu (einnig N.-Evrópu) og
Asíu, hefir sést nokkrum sinnum í Færeyjum, en aldrei hér áð-
ur, svo menn viti. Hann er gerólíkur hrafni í útliti og háttum,
líkist uglum að lit og að því leyti, að hann er náttfugl, en hann
lifir mest á náttfiðrildum og er afskaplega ginvíður. Áður hefir