Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1933, Qupperneq 29

Náttúrufræðingurinn - 1933, Qupperneq 29
.NÁTTÚRUFR. 187 Rita,1), merkt (fullorðin) á Sauðárkróki þann 9. júlí 1982. Drepin á Newfoundlandi (í nóv?) 1933. Innanlands hafa náðst: 1. Rjúpa, merkt hjá Brekkukoti, Efribyggð í Skagafirði þ. 12. marz 1933. Skotin sama staðar þ. 16. október 1933. 2. Rjúpa, merkt þann 5. marz við Mælifellsá í Skagafirði. .Skotin sama staðar þann 17. október 1933. 3. Rjúpa, merkt við Mælifellsá í Skagafirfði þann 13. marz 1933. Skotin sama staðar þ. 23. október 1933. 4. Húsönd, merkt á hreiðri hjá Grímsstöðum við Mývatn þann 11. júní 1933. Fannst dauð í silunganeti í Vogum í sömu .sveit þann 11. júlí 1933. 5. DuggancLarungi, merktur hjá Grímsstöðum við Mývatn þann 18. ágúst 1933. Flaug á símaþráð sama staðar þann 30. .ágúst 1933. 6. Duggandarungi, merktur hjá Grímsstöðum við Mývatn þ. 1. ágúst 1933. Drepin af ketti sama staðar þ. 14. ágúst 1933. 7. U kriuungar, merktir hjá Grímsstöðum við Mývatn þann 19. júní 1933. Fundnir duauöir sama staðar þann 8. júlí 1933. 8. Máríuerluungi, merktur í hreiðri á Grímsstöðum við Mý- vatn þann 19. júní 1933. Fundinn dauður sama staðar þann '7. júlí 1933. 9. Þúfutittlingsungi, merktur á Bergstöðum á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu þann 14. júlí 1933. Fannst dauður sama :staðar nokkrum dögum síðar. 1) Tilkynningu um þessa ritu fékk eg á Þorláksmessu s. 1. frá Flota- og fiskimálará'Suneytinu í St. John’s á Newfoundlandi (Department of Marine and Fisheries). Þangað hafði komið tilkynning um þessa ritu frá manni búsettum á Fogo-eyju á Newfoundlandi, sem segist hafa drepið þennan fugl, og sendi ráðuneytinu lýsingu á merkihringnum, en hann gat ■ekki um stað né stund þar sem hann náði ritunni. Ef til vill hefir það verið úti á fiskimiðum við Newfoundland. Hofi eg gert ráðstafanir til þess að fá ná- kvæmari vitneskju um þetta, — á hvaða stað og hvaða dag fuglinn náðist. í 3.—-4. hefti Náttúrufræðingsins þ. á., bls. 59, gat eg þess, að vænta mætti fróðleiks um háttu ísl. ritunnar, flakk hennar um höfin o. s. frv., ef nógu margar væru merktar. Rætist það nú fyrr en mig varði. Er það mjög Ánægjulegt hversu góður árangur hefir þegar orðið að merkingunum, eftir liðlega eitt starfsár. Má því vænta góðs í framtíðinni; sérstaklega vegna þess, að s. 1. sumar hafa all-margir nýir liðsmenn gefið sig fram til fugla- merkinganna, og hafa mér borizt skýrslur um lofsverða starfsemi margra, A'íðsvegar um land. M. B.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.