Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1947, Side 23

Náttúrufræðingurinn - 1947, Side 23
NÁTTÍJRUFRÆÐINGURINN 15 uðu 1928. Þær hafa í stuttu máli sýnt, að hinir einstöku árgangar eru injög misjafnir að styrkleika og það hefur gagnger áhrif á veiði- magnið. Einstaka árgangur getur að mestu leyti borið veiðina. Á mynd 2 hef ég borið saman aflamagnið í Vestmannaeyjum, miðað við fjölda þorska á 1000 króka, og styrkleika árgangsins 8 árum áður. Ég hef hér áætlað, að flestir komi í gagnið 8 ára, þótt það geti ef til vill verið dálítið breytilegt. En við sjáum strax, live gott samræmið er: Á árunum 1924—1930 hefur styrkleiki árganganna stöðugt farið minnkandi, og við sjáum einnig, að á árunum 1932— 1938 hefur fiskimagnið einnig stöðugt farið minnkandi. Mynd 3 sýnir veiðar allra þjóða á íslandsmiðum á þessari öld (efst) og veiðar brezkra togara á sarna tíma (neðst). Á árunum fyrir 1914 eykst heildaraflinn stöðugt, og sama máli gegnir um dagsaflann. Eftir hléið, sem skapaðist af styrjöldinni, eykst heild- arveiðin ekki skyndilega og fellur aftur, lieldur er aukningin jöfn. Fram til 1929 er dagveiðin nokkuð jöfn, en eykst eftir það skyndi- lega fram til ársins 1932, og fer eftir það hægt lækkandi. Við sjáurn, að hér er um að ræða aukna nýtingu mikils fiskstofns, sem ekki sýnir ennþá nein greinileg merki um offiski eins og ýsu-, skarkola- eða lúðustofnarnir.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.