Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 25

Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 25
Áskell Löve: Heimskautasveifgras (Poa arctica R: BR.) fundið á Hornströndum íslenzkar jurti'r liafa sjaldan verið athugaðar gaumgæfilega af sérfræðingum, og sökum þess að rannsóknir á jurtaríki' landsins hafa nær eingöngu verið tómstundavinna áhugasamra náttúruskoðara, er engin furða, þótt árlega finnist nýjar, íslenzkar tegundir jurta. Þó að hægt sé að búast við ófundnum tegundum í nær öllum jurtaætt- unum, er jress enn meiri von, að nýjar tegundir grasa og hálfgrasa komi fram í dagsljósið, þegar farið verður að í'annsaka til hlýtar þau söfn, sem áhugamenn hafa viðað að sér undanfarna áratugi. Síðastliðið sumar hóf höfundur þessarar greinar rannsóknir á ýmsum túnjurtum og þó aðallega íslenzkum sveifgrösum. Mér varð brátt Ijóst, að lúð svonefnda vallarsveifgras (Poa pratensis L.) hefur að geyma nokkrar deiltegundir, senr þurfa nánari athugunar við. Þess vegna viðaði ég að mér töluverðu af þessari grastegund, bæði úr náttúrunni og úr söfnum í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Á grundveili þessara rannsókna er nú óhætt að fullyrða, að hér á landi eru algengustu vallarsveifgrösin af deiltegundunum ssp. irrigata (LINDM.) LINDB. FIL. og ssp. alpigena (FR.) HIIT., en auk þeirra vaxa á nokkrum stöðum, aðallega á túnum eða í nánd við ræktar- lönd, deiltegundirnar ssp. angustifolia (L.) LINDB. FIL. og ssp. eupratensis HIIT., og að minnsta kosti hin síðastnefnda er áreiðan- lega aðflutt með grasfræi. Slatti af vallarSveifgrösunum af hálendi íslands er þannig, að vart er hægt að telja jrau til neinnar ltinna fyrrnefndu deiltegunda. Þau líkjast rnest ssp. alpigena, en bera þó nokkurn keim af þeirri tegund, sem á latínu nefnist Poa arclica, en á íslenzku heimskautasveifgras, enda hafa sumir grasafræðingar ranglega talið jicssi eintök til þeirrar 2

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.