Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 41

Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 41
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 33 gagns. Fara verður gætilega í það að draga jarðíræðilegar ályktanir af einni einustu mælilínu. Þó er óliætt að segja, að mælingar Schleu- seners lofi góðu um árangurinn, ef slíkum mælingum yrði lialdið áfram á skipulagsbundinn hátt. Myndin sýnir árangurinn af mælingum Schleuseners. Það sem fyrst vekur eftirtekt er, að þyngdarlínan er í þrepum, og er hvert þrep 15—20 km að lengd. Samsvarar þetta allvel íslenzku landslagi og jarð- myndnn, þar sem skiptast á breiðar rishæðir og siglægðir. Ennfremur sést, að Eyjafjörður og Vaðlaheiði liggja á sama þrepi. Styður það þá skoðun Þorvalds Tlioroddsens, að Eyjafjörður sé skapaður af jökul- núningi eingöngu, en ekki jarðhræringum. Þess ber þó að gæta, að fjarlægðin milli tveggja vestlægustu punktanna á línunni er nokkuð löng (7—8 km), og liggur annar uppi í Kræklingalilíð, en hinn vestan í Vaðlalieiði. Næsta þrep byrjar austan Fnjóskár. Gæti |>að samrýmzt þeirri kenningu, að Fnjóskadalur eigi uppruna sinn í jarðhræringum og liggi misgengið milli Háls og Enjóskár. Þrep þetta er nokkuð óreglu- bundið. Elestir punktarnir liggja á lausum jarðlögum, sennilega mis- þykkum, og er hugsanlegt, að það valdi misræmi þessu. í nánd við Goðafoss eykst þyngdin aftur, og má ætla, að hið mikla Bárðardalsmisgengi valdi. Samkvæmt rannsóknum Walters Iwans fylgir misgengið ekki vesturhlíðum Bárðardals nema eitthvað norður fyrir miðjan dalinn, og telur hann, að framhald þess í Köldukinn liggi vestan undir Kinnarfelli. Samkvæmt þessum athugunum væri því þess að vænta, að brotlínan liggi í námunda við Goðafoss eins og þyngdarmælingarnar benda til. Þá er það og eftirtektarvert, að jarð- þyngdin er meiri austan við misgengið en vestan við það. Bendir það í fyrsta lagi á, að blágrýtinu sé ekki lokið við misgengið, og í öðru lagi, að blágrýtið hvíli á léttara bergi, móbergi, graníti eða set- bergi, beggja vegna misgengisins. Við Laxá minnkar þyngdin aftur. Hingað til hafa þó jarðfræðing- ar ekki tekið eftir misgengi þar. Ef þess er gætt, hversu sundurtætt Mývatnsþrepið er af sprungum og gosstöðvum, er það eftirtektarvert, hversu jöfn þyngdin er á öllu þrepinu. Sennilega bendir þetta á, að jarðhræringar þessa svæðis séu að mestu leyti láréttar. Lóðrétt mis- gengi í stórum stíl mundu endurspeglast í þyngdarlínunni. Við Vestari-Brekku á Mývatnsöræfum minnkar jarðþyngdin og helzt jöfn þaðan að Jökulsá. Austasti mælipunkturinn, Grímsstaðir á Ejöllum, sýnir aftur á móti meiri þyngd, einnig tveir hliðarpunktar 3

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.