Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1947, Page 53

Náttúrufræðingurinn - 1947, Page 53
Dr. phil. Helgi Pjeturss hálfáttræður Hinn þriðja dag Hekluelds, 31. marz sl., átti dr. phil. Helgi Pjet- urss 75 ára afmæli. Náttúrufræðingnum er ljúft og skylt að flytja dr. Helga árnaðaróskir og þakkir fyrir allt, senr liann hefur unnið íslenzkri náttúrufræði. En eigi verða verk hans rakin hér, svo sem vert væri á slíku merkisafmæli, lieldur vísað til greinar Jóhannesar Áskelssonar um dr. Helga sjötugan (Náttúrufr. 1942, 2. h.). Þess skal þó getið, að dr. Helgi Pjeturss var kjörinn heiðursfélagi danska jarðfræðingafélagsins, Dansk Gevlogisk Forening, á auka- aðalfundi í Kaupmannahöfn 16. janúar 1943. Áður hafði félagið veitt aðeins sex jarðfræðingum þenna heiður (fyrstur þeirra var pró- fessor Þorvaldur TJtoroddsen), og er nú enginn þeirra á líi’i. En á þessum fundi voru kjörnir tveir Iieiðursfélagar (Svíi og Norðmaður) auk dr. Helga. Formaður Dansk Geologisk Forening, mag. scient. Hans Clausen, mælti fyrir kjöri dr. Helga Pjetnrss á þessa leið: „Dr. Helgi Pjeturss hefur Jilotið menntun sína hér í Danmörku, og mikilvæg rit eftir hann eru til á danska tungu. T. d. er doktors- ritgerð Jians Om Islands Geologi prentuð í Meddelelser fra' Dansk Geologisk Forening. Veigamestur var sá skerfur dr. Helga Pjeturss til vísindanna, er liann sýndi frarn á, að móbergsmyndunin væri kvarter að aldri. Danskir jarðfræðingar, sem unnið ltafa á íslandi tvo síðustu áratugi, Jiafa átt að fagna takmarkalausum áhuga og hjálpsemi af hálfu dr. Helga Pjeturss, og hin einstaka þekking Jians á jarðfræði íslands hefur orðið dönskum jarðfræðingum og um leið donskum jarðfræðirannsóknum að miklum notum.“ Guðm. Kj.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.