Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 7

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 7
Esjufjöll (Guðmundur frá Miðdal tciknaði) Jöklarannsóknir skipulagðar Jöklarannsóknafélag íslands var stofnað í Reykjavík 22. nóvember 1950. Var boðað til stofnfundar af nokkrnm náttúrufræðingum og ferðamönnum í sameiningu. Um 40 meðlimir gengu í félagið á stofnfundi, en allmargir hafa bætzt í hópinn síðan. Bráðabirgðalög voru samþykkt og kosin stjórnarnefnd til þess að endurskoða þau og leggja fyrir framhaldsstofnfund. í stjórnarnefnd eru þeir Árni Stef- ánsson, Guðmundur Kjartansson, Jón Eyþórsson, Sigurjón Rist og Trausti Einarsson. Hefur nefndin fest kaup á járnskála á Keflavíkur- flugvelli, og er ráðgert að reisa hann í Esjufjöllum í Breiðamerkur- jökli í sumar. Esjufjöll eru ókönnuð með öllu, og liafa ýmsir íslenzk- ir náttúrufræðingar hug á að gera þar skipulegar rannsóknir sumar- ið 1952. Síðar er ætlunin að reisa vistlegan skála í Esjufjöllum og hafa þar snjóbíla eða vélsleða til ferða um Vatnajökul. Verður þá einnig hægt að greiða fyrir ferðamönnum, enda leggur félagið á- herzlu á samstarf fræðimanna og ferðamanna. Allar rannsóknir á jöklum krefjast dugandi ferðamanna og bezta ferðabúnaðar, sem völ er á. Verkefni eru ærin fyrir félag þetta, umfangsmeiri og fjölbreyttari en ætla má, að það hafi bolmagn til að leysa af liendi. Ferðamenn,

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.