Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 27

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 27
ÍSI.ENZKAR STARIR 21 stör (C. pilulifera). Nú eru bæði dúnhulstrastör, grástör og hagastör algengar í Færeyjum og á Bretlandseyjum, en íinnast ekki í Græn- landi, þær eru því óefað komnar úr suður- eða suðausturátt, enda bera fundarstaðirnir þess vitni. En hvernig hafa þær þá komizt hing- að? Það er hægt að hugsa sér þrjá möguleika: 1., að þær liafi komið eftir landbrú, er tengdi ísland við Færeyjar. 2., að farfuglar hafi flutt fræ tegundanna hingað, annaðhvort frá Færeyjum eða Bretlandseyj- um. 3., að fræ tegundanna liaíi borizt hingað með Pöpurn eða land- námsmönnum. Hvað fyrsta atriðið snertir telja sérfróðir menn full- víst, að landið hafi verið úr tengslum við önnur lönd að síðustu ísöld lokinni. Þriðja atriðið tel ég engu sennilegra eftir fundarstöðum teg- undanna að dæma. Er þá ekki um annað að ræða en að farfuglar hafi séð um flutninginn, og væri það vel hugsanlegt, þegar vaxtar- staðirnir eru athugaðir og þar sem tekizt hefur að sanna, að fuglar, sem á dýrafæðu lifa, geta flutt fræ milli landa í meltingarveginum. En sem sagt, um það hvernig jressar tegundir hafa komizt hingað, getum við ekkert fullyrt. Frekari athugun á útbreiðslu þeirra rnundi ef til vill leiða eitthvað nýtt í 1 jós. Um safastörina er hið sama að segja og um hinar þrjár, að öðru leyti en því, að ekki er fjarri lagi að ætla, að liún hafi flutzt inn með Pöpum eða landnámsmönnum, þar sem hún er algeng bæði á Bretlandseyjum og í Noregi. Að minnsta kosti hefur tegundin komið seint inn í landið, ef dærna rná i'it frá þekktum fundarstöðum hennar. Þó liallast ég frekar að því, að fuglar hafi flutt liana inn (sjá útbreiðslukort). Gljástörin er eina starategundin, er ég hygg, að standi næst því, að liafa tekið hér ból- festu á landnámstíð. Eini fundarstaður hennar, sent þekktur er, ligg- ur rétt við túnjaðarinn á Ytri-Hrafnabjörgum í Hörðudal og er út- breiðslan mjög takmörkuð. Hörðudalur byggðist og snemma. Það er einnig athyglisvert, að tegundin er hvorki í Færeyjum né á Græn- landi, en mjög algeng á láglendi í Noregi, og gat því mjög auðveld- lega borizt liingað með heyflutningum fornmanna. XIII. Hagnýt þýðing staranna Þorvaldur Thoroddsen getur þess til, að 8% af öllu yfirborði ís- lands sé mýrlendi og votlendi. Ef Jressi mýrasvæði væru samfelld og mynduðu ferning, yrði sá ferningur livorki meira né minna en 91 km á hvern veg. Nú er það vitað, að starirnar eru ráðandi tegundir mýragróðursins, og hafa því haft mikilsverðu hlutverki að gegna í

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.