Náttúrufræðingurinn - 1951, Síða 38
NÁTTÚRUF RÆ ÐINGURINN
32
safna í poka öllum þara, sem hafði festu á 5 m2 svæði, sem valið var
af handahófi áður en kafarinn var sendur niður. Einnig gekk kafar-
inn um svo sem 500 m2 svæði og fékk við það allgóða hugmynd um
þaramagnið, bæði live mikill hluti botns var þakinn þara og eins,
hvort staður sá, sem þarinn var tekinn af, gaf rétta hugmynd um
meðal þéttleikann.
Að jafnaði var kafað um það bil einu sinni á klukkustund, en þó
að köfunin sé þetta seinleg má telja öruggt að aðferð þessi gefur
meiri og öruggari upplýsingar um þaramagnið en fást mundu á
sama tíma með því að nota botngreip. Auk þaramagns fæst þá um
leið þekking á vaxtarháttum þarans og botnlagi. Þar sem dýpið er
innan við 10 m mætti auk þess nota léttari kafarabúning en liér var
notaður, og myndi þá köfunin ganga mun fljótar.
Svæði það, sem tekið var til athugunar takmarkast að vestan af
línu milli Skáleyja og Skálaness og að sunnan af línu frá norðurenda
Skáleyja til syðsta hluta Reykjaness (sjá kort).
Fyrst var farið um svæðið á báti, dýpið mælt og þarakló eða krók-
ur dreginn eftir botninum til þess að fá hugmynd um livar væri þari
og hvar ekki. Á mestum hluta svæðisins reyndist minna en 10 m með-
aldýpi og varð alls staðar vart við einhvern þara, mest hrossaþara en
einnig beltisþara. Á 10—15 m dýpi varð víðast hvar vart einhvers
hrossaþara og á nokkrum stöðum kom einnig upp beltisþari. Þar sem
dýpið var yfir 15 m varð mjög lítið vart við þara, aftur á móti kom
klóin hér upp með talsvert af kerlingarhári.
Kafanir fóru fram á 19 stöðum, völdum af handahófi og dreifðum
sem bezt um allt svæðið. í 5 tilfellum var dýpið 10—15 nr og reynd-
ist meðalþaramagnið hér um 1 kg/m2.
Hinar kafanirnar voru allar gerðar á minna en 10 m dýpi og
reyndist þaramagnið ltér um 3 kg/m2 að meðaltali. Tala þessi er þó
engan veginn nákvæm en telja má víst að meðal þaramagnið á svæð-
inu l'rá neðra fjöruborði til 10 m meðaldýpis sé þarna milli 2 og 4
kg/m2.
Svæði það, sem rannsakað var, skiptist í tvennt af þorskaljarðar-
álnurn, sem gengur út frá Þorskafirði og er allur yfir 10 m djúpur.
Állinn er ekki vaxinn þara, en l'yrir vestan hann eru grynningar, sem
ganga frá Skáleyjum til Skálaness og er dýpið á miðjum hryggnum
aðeins 5—6 m. Á grynningum þessum skiptast á þarabreiður og
skeljasandseyður. Um fjöru má sjá þara og skeljasandsbreiðurnar
úr lofti. Kemur þá í Ijós að þær eru yfirleitt nokkuð reglulegar að