Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1951, Side 41

Náttúrufræðingurinn - 1951, Side 41
ATHUGANIR Á ÞARAGRÓÐRl í BREIÐAFIRUl 35 þær eftir í skeljasandsbeltunum, þar sem þær molna niður fyrir áhrif öldugangsins. Botninn í þarabeltunum er vfirleitt sæmilega sléttur malarbotn, en á milli þeirra er hann þakinn sléttum, fínum skelja- sandi. Þaragróðurinn er hér nijög stórvaxinn. Bæði hrossa- og beltisþarar eru um 2 kg. að meðaltali og um 3 m iangir, en geta þó orðið að minnsta kosti 5 m. Svæðið austan Þorskafjarðarálsins liggur að miklu leyti í vík eða vog suðvestur undir Reykjanesinu og gætir þar mjög lítið sjávarfalla- strauma. Hér verður lítið vart við skeljasandsbletti, en þarinn vex samfellt í stórum breiðum og er þéttvaxnari en smávaxnari heldur en á svæðinu vestan álsins. Botninn er sæmilega sléttur malarbotn og hér vex næstum eingöngu hrossaþari. Alls var athugað um 60 km2 svæði og var þaramagn svæðisins ails áætlað um 130,000 tonn. 40 km2 eru grynnri en 10 m og vex hér um bil allur þarinn á því svæði, um 3 kg. á fermetra að meðaltali. Um 34 af þaranum er hrossaþari en 14 beltisþari. Sigurður Pétursson: Nokkrar athuganir á þaragróðri undan Reykjanesi og Skálanesi á Breiðafirði 1. Þaragróður undan Reykjanesi, á 5—10 m dýpi Á þessu svæði var aðalgróðurinn hrossaþari (Laminaria digitata), en slæðingur var einnig af beltisþara (Laminaria saccharina). Víða fannst talsvert af kerlingarhári (Desmarestia aculeata). Voru þessar þrjár tegundir að þunga til næstum 100% þess þara, er þarna var tekinn upp. Magn annarra þarategunda, sem þarna fundust var hverfandi lítið. Voru það allt saman smávaxnir þörungar, sem uxu á leggjum og þönglum Laminaria-tegundanna eða á steinum í botn- inum. Af þessum tegundum var mest um kóralþang (Corallina offi- cinalis), brúnfjöður (Chaetopteris plumosa) og kalkmyndandi rauð-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.