Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 46

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 46
40 NÁTTl) RUFRÆfilN G IJ RIN N vold og samstarfsmenn lians leit að síldinni í Noregshafinu. Þeir komust á þá skoðun, að í maí og júní liéldi norska síldin sig aðallega á hafsvæðinu fyrir norðan Færeyjar, en í júlí, þegar minna var orðið um átu á því svæði, gekk hún norður á bóginn. Eftirtektarverðast var það, að hún virtist forðast kalda sjóinn í Austur-íslandsstraumn- um. Virtist meginliluti hennar leggja leið sína fyrir austan köldu tunguna, norður á bóginn í áttina til Jan Mayen. En nokkur hluti mun hafa gengið fyrir vestan hana norður með Austfjörðum. Mest virtist þeim vera um síld nálægt straumamótum, enda var þar mest um átu, og er það í samræmi við okkar eigin rannsóknir fyrir norðan og austan land. Devold telur líklegt, að síldin sæki einkum í hlýjan sjó á sumrin, meðan hún er að fita sig, vegna þess að efnaskiptin eru örari við hærra hitastig. Hinsvegar sæki hún í kaldan sjó, þegar haustar og minna verður úm æti, vegna þess að þá haldist henni bet- ur á þeirri forðanæringu, sem henni hefur tekizt að afla sér yfir sum- arið. Það þótti því líklegt að hún leitaði yfir í Austur-íslandsstraum- inn, þegar Iiaustaði og fylgdi lionum, sem leið liggur frá Jan Mayen og suður til Færeyja. Síðan gengi hún þvert á golfstrauminn, sem streymir upp með Noregsströndu, og inn á grunnmiðin, en einnig gat komið til mála, að hún forðaðist hlýja sjóinn og gengi djúpt, undir golfstraumnum. Rannsóknarskipið G. O. Sars er nýlega (þann 23. jan. 1951) komið úr rannsóknarför, sem hófst þann 8. desember. Byrjað var á því að rannsaka Austur-íslandsstrauminn, en síldin fannst ekki fyrr en kornið var suður undir Færeyjar. Eftir það var hægt að fylgja síldar- torfunum á leið þeirra upp að norsku ströndinni. Þegar ekki var um greinileg hitaskipti að ræða, syntu torfurnar með tveggja sjómílna Iiraða, en þær stönzuðu í fleiri daga, ef þær mættu hitaskiptum á leiðinni. Oft fór rannsóknarskipið langar krókaleiðir, án þess að finna nokkrar torfur, og snéri síðan við og leitaði þar sem lniast mátti við að torfurnar væru á leiðinni, og fann þær alltaf aftur. Síld- in liélt sig alltaf í kalda sjónuni, rétt innan við austurvegg straums- ins, og ekki það djúpt, að ókleyft vœri að veiða liana. Þessar athug- anir styðja nijög þá skoðun, að fiska megi síldina í úthafi, ef nægi- lega góð veðurskilyrði eru á hafinu. Þegar að golfstraumskvíslinni kom, urðu fiskifræðingarnir þess áskynja, að síldin gekk ekki undir golfstrauminn, lieldur gegnum liann. En þegar hún nálgaðist land- grunnið, varð erfiðara um eftirgrennslanir, vegna þess að asdic-tækið var þannig stillt, að erlitt var að leita með því á grunnmiðum.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.