Náttúrufræðingurinn - 1952, Qupperneq 16
10
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
Fundarstaðir nokkurra sjaldgæfra tegunda. — Tegundir, sem fundizt liafa á einum
stað lifandi við ísland. Hvert hinna fjögurra merkja sýnir fundarstaðinn, og eru sam-
kynja merki framan við tilsvarandi tegundir.
útbreiðsla tegundanna fram að þeim tíma, auk ýmiss konar annars
fróðleiks.
V. Fjöldi skeljategunda vi8 ísland
í hinu nýja skeldýratali eftir Jenseníus Madsen, eru nefndar alls
88 tegundir, sem nokkurn veginn er fullvíst, að fundizt hafa hér lif-
andi. En einnig getur höfundurinn 4ra tegunda, sem mjög ferskar
skeljar hafa fundizt af á minna en 400 metra dýpi, og því mjög senni-
legt, að þær lifi einnig lífi sínu í „íslenzkri landhelgi“. Ég hef því
leyft mér að bæta þessum tegundum við. Verða þá tegundirnar 92 að
tölu. Ættirnar, er tegundir þessar teljast til, eru 30, 12 tegundir af
3 ættum teljast til jafntönnunga, 24 tegundir af 4 ættum til vanvöðv-
unga og 56 tegundir til plötutdlkna og 23ja ætta. Þriðjungur allra
tegundanna er fágætur. Ekkert verður sagt um það með vissu, hvort
tegundum liefur raunverulega fjölgað við strendur landsins á síðasta
aldarfjórðungi, þar sem rannsóknir framan af öldinni voru til þess
alltof dreifðar og ófullnægjandi. Þó hygg ég fremur, að hinn vaxandi