Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 31

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 31
ÚR DAGBÓK. ÍSLENZKA FÁLKANS 25 ungamæður rétt við nefið á mér. Fótahreyfingar fálkans leyna sér heldur ekki, þegar hann ætlar að gripa bráðina. Á sama hátt sést glöggt, þegar fálkar slá með krepptum fótum á landi og á vatni, enda er þá líka hraði þeirra mestur. Aftur á móti hef ég ekki getað greint neinar fótahreyfingar, þegar fálkar slá stóra fugla á flugi. Þó hef ég oft séð fálka í harðvítugum bardaga við hrafna og veiðibjöllur rétt yfir höfði mér. Hefur mér þá sýnzt fálkinn stundum kreppa fæturna fram og upp að kviðnum, en hafa tærnar útglenntar. í öllu falli hef- ur krummi stundum losnað við fullmargar fjaðrir, þótt hann hafi brugðið fyrir sig „baksundi" á fluginu og beitt nefinu, en það óttast fálkinn mest. Bezti varnarstaður allra sundfugla gegn árásum fálkans er vatnið. Stinga þeir sér eldsnöggt, áður en hann nær til þeirra, því að höfuðið er sá bletturinn, sem á er rniðað. Þurfa smærri endur ekki nema lítið högg, til þess að höfuðkúpan brotni. Sem dærni um það, hvernig fálkinn beitir sér, þegar hann slær fugla á landi og á vatni, er eftirfarandi saga, þótt gaman réði þar meiru um aðför hans en alvara. Harða vorið 1924 lá ég á greni seint í júní. Umhverfis það var enn rennigaddur. Tófan hafði grafið sig marga faðma gegnum gaddinn inn í urð við háa melbrún. Þar fann ég felustað milli steina. Yrðling- arnir voru gamlir og furðu stórir. Einn þeirra kom oft út um munn- ann, sem var á fönninni 12—14 m frá mér, og eftir miklar vangavelt- ur tyllti hann sér á rassinn hjá munnabarminum og „spekúleraði“ í þessu furðuverki, er hímdi rétt hjá honum. Klukkan 8 um kvöldið rekur hvolpurinn enn út höfuðið og liorlir undan sól, því að birtan af snjónum var mjög sterk. í sömu svifum kemur fálki úr norðvestri, undan sól, og stefnir á mig. Skyndliega kreppir liann vængina, leggur þá að síðunum, og rennir sér niður með vaxandi hraða og stefnir beint á yrðlinginn. Þegar hann á stutt til jarðar, sé ég glöggt, að krepptir fætur koma í augsýn og verða meira áberandi, er hann nálg- ast. Og um leið og hann þeytist frarn, yfir yrðlinginn, virðast mér þeir næstum lóðréttir frá ökla, en lær og sköflungur réttust ekki neitt í líkingu við það, sem þeir gera venjulega, er þeir ætla að gtípa í bráðina. Viðbragðinu, sem hvolpurinn tók, ætla ég ekki að lýsa hér, en það sýnir tvennt. Hið fyrra, að höggið snerti liann, hið síðara, að þetta kom óvænt, eins og þruma úr heiðríkjunni. Hér vil ég bæta við nokkrum frásögnum eftir suma af sýslungum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.