Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 37

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 37
Sigurður Þórarinsson: SéS frá þjóðvegi Þótt margir jarðfræðingar hafi lagt leið sína um ísland, er landið ennþá svo lítið kannað, að enn má næsta víða rekast á merkileg og áður órannsökuð jarðfræðileg fyrirbæri. Það má jafnvel rekast á þau bókstaflega á aðalþjóðvegum landsins, sem daglega eru farnir af fjölda fólks. Hér skulu til gamans tekin tvö dæmi. Má vera, að ég minnist á fleiri síðar. I. Jaðarrásirnar við Másvatn Þegar farið er úr Reykjadal yfir Laxárdalsheiði til Mývatns, liggur þjóðvegurinn nokkurn spöl fram með vesturströnd Másvatns. Þeg- ar kemur nokkuð suður með vatninu, verður þess vart, að vegur- inn liggur eins og í öldum, yfir hverja lægðina eftir aðra, og breiða lága hryggi á milli. Þegar kemur suðaustur fyrir vatnið, verður fyrir hlið á girðingu, einni þeirra mörgu pestargirðinga, sem eru leiður farartálmi flestu nema fjárpestunum. Þarna verða bílarnir að stað- næmast, því að enginn hliðvörður er þar lengur. Ég vil ráðleggja þeim, sem fara þarna um í birtu og góðu veðri, að neyta þá tækifær- isins og líta dálítið kringum sig. Suður af Másvatni gengur mýri, sem heitir Kæfumýri, og liggja ávalir ásar að henni að austan og vestan. Heitir Víðafell að vestan, en Brattás og Selbunga að austan. Ásar þessir eru vaxnir lynggróðri og lágvöxnu víðikjarri. Sé dálítið að- gætt, má sjá, að skáhallt niður þær hlíðar ásanna, sem vita að mýr- inni og vatninu, liggja rásir í áttina til vatnsins, hver ofan við aðra. Má telja eitthvað 12—13 rásir að vestanverðu og álíka margar að austanverðu. Ber mest á þessum rásum þegar sól er lágt á lofti, svo að rásabarmarnir varpa skugga, virðast hlíðarnar þá eins og strikaðar af dökkum, breiðum strikum. Má sjá þetta á 1. mynd, sem tekin er móti vestri af þjóðveginum, skammt sunnan við pestargirðingarhlið-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.