Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 38
32
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
]. mynil. Jaðarrásir suður a£ Másvatni. — Lateral drainage channels 5 o/ Lake Mdsvatn.
Ljósm.: S. Þórarinsson.
ið. Sér í forgrunni niður í eina af rásunum, en í bakgrunni sjást rás-
irnar í Víðafellinu, liver ofan við aðra. Þessar rásir eru, lauslega áætl-
að, 2—3 m djúpar, 15—25 m breiðar, og hryggirnir milli þeirra 60—
100 m breiðir. Þær eru skornar gegnum botnurðarlag, sem hér er til-
tölulega jafnþykkt, og er grunnt á fast berg í botni þeirra.
Rásir af þessu tagi má sjá víða í löndum, sem hulin hafa verið ís-
aldarjöklum, en hvergi hef ég séð þær eins reglulegar og við Más-
vatn, nema á einum stað, en það er í vesturhlíðum fjalls þess, sem
Sánfjállet heitir, en það fjall er í Herdölum í Svíþjóð. Um þetta fjall
ferðaðist égsumarið 1943 ásamt kunningja mínum, Carl Mannerfelt,
sem ýmsum hérlendis er kunnur, síðan hann tók þátt í sænsk-íslenzka
Vatnajökuls-leiðangrinum 1936. Á stríðsárunum vann hann að rann-
sóknum á menjum eftir bráðnun ísaldarjöklanna í fjallendum Mið-
svíþjóðar og skrifaði stórmerkilega doktorsritgerð um þessar rann-
sóknir sínar. Hann hefur rneðal annars fyrstur manna rannsakað
gaumgæfilega rásir af því tagi, sem sjá má við Másvatn, og gefið full-