Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 54
Ritstjórarabb
Með þessu Iiefti tekur undirritaður aftur við ritstjórn Náttúru-
fræðingsins, sem dr. Hermann Einarsson hefur nú gegnt í rúmlega
ár, vegna dvalar minnar erlendis og ýmissa anna. Hefur Náttúru-
fræðingurinn auðsæilega ekki skaðazt á þeim ritstjóraskiptum, og
þakka ég Hermanni ágætt starf.
Á aðalfundi Hins íslenzka náttúrufræðifélags þ. 9. febrúar síðast-
liðinn var sú mikilvæga breyting gerð á lögum félagsins, að tíma-
ritið Náttúrufræðingurinn, sem félagið hefur gefið út síðan 1941,
var gert að félagsriti, en árgjald til félagsins hækkað sem svaraði þá-
verandi áskriftarverði tímaritsins, þ. e. úr 10 krónum í 40 krónur.
Með þessum breytingum fór félagið að dæmi flestra þeirra félaga,
innlendra og erlendra, er gefa út árbækur eða tímarit. Má t. d.
nefna Ferðafélagið og Bókmenntafélagið. Fyrir þá, sem bæði hafa
verið félagismeðlimir og kaupendur Náttúrufræðingsins, veldur
breyting þessi engum auknum fjárútlátum. Þeir, sem voru orðnir
ævifélagar fyrir síðasta aðalfund, eiga þess kost að fá annaðhvort
Náttúrufræðinginn með gamla áskriftarverðinu eða ókeypis sér-
prent af ársskýrslu félagsins, sem hér eftir mun verða prentuð í
Náttúrufræðingnum. Fyrir þá utanfélagsmenn, sem haía verið
kaupendur Náttúrufræðingsins, hefur lagabreytingin 10 króna
hækkun í för með sér, en þá hækkun hefði orðið að gera, vegna vax-
andi dýrtíðar, án tillits til þess hvort ritið var gert að félagsriti eður
ei, og hinu hækkaða árgjaldi fylgir innganga í félagið, ef menn
óska þess. Sú er von allra þeirra, er að félaginu og Náttúrufræð-
ingnum standa, að þessi lagabreyting verði bæði til að efla hag
félagsins og bæta hag Náttúrufræðingsins, sem stöðugt berst í bökk-
um fjárhagslega. Þess skal getið, að fjárframlag til tímaritsins var
hækkað nokkuð í síðustu fjárlögum, og þökkum vér einkum