Náttúrufræðingurinn - 1968, Qupperneq 92
78
NÁTTÚ RUFRÆÐING U RIN N
önd. Einnig telur Brooks, að þessar tegundir niegi greina sundur
á naglarlengd og breidd nefs við framjaðar nasa. Mér hefur þó
reynzt ókleift að greina á milli allra fullvaxinna fugla á þessum
málum einum, og auk þess er mjög erfitt að mæla nákvæmlega lengd
naglar á þessum tegundum. Við athuganir mínar á þessu atriði kom
í Jjós, að hægt er að greina alla fullvaxna fugla á hlutfallinu milli
breiddar nagiar og breiddar nefs. Naglarbreiddin er mæld þar, sem
nöglin er breiðust, en nefbreiddin móts við framjaðar nasa. Við
þessar mælingar notaði ég 81 húsönd, þar af 51 (25 dúnunga) frá
íslandi og 30 (10 dúnunga) lrá Norðurameríku, og 78 hvinendur,
4 frá íslandi, 4 frá Evrópu, 9 frá Austurasíu og 61 (10 dúnunga)
frá Norðurameríku. Samkvæmt mælingum mínum (1. mynd) má
örugglega ákvarða til tegundar allar húsendur og hvinendur á því,
að naglarbreidd hvinandar er innan við 41% af neíbreidd, en nagi-
arbreidd húsandar yfir 42% af nefbreiddinni. Þetta á þó einungis
við um nokkurn veginn fullvaxna fugia (nefbreidd meiri en 13
mm). Munurinn á dúnungum er minni, og er sennilega ekki hægt að
ákvarða þá alla. Með hjálp punktaritsins (1. mynd) má þó færa
sterkar líkur að því, hvorri tegundinni þeir tilheyra. Auk þess, sent
hér hefur verið talið, hef ég athugað gildi ýmissa annarra auðkenna,
sem talin ltafa verið greiningareinkenni á ungfuglum eða kven-
fuglum Jtessarra tegunda. Er rétt að taka fram, að öll þessi ein-
kenni eru ótraust. Loks vil ég geta Jtess, að tveir kynblendingar hús-
andar og hvinandar hafa fundizt í Kanada (Snyder 1953, Jackson
1959) og er óvíst hvort hægt er að bera kennsl á slíka fugla, nema
blikana.
Hvinendur á íslandi
Allt fram á fyrri hluta 19. aldar geta nokkrir höfundar hvinandar
sem varpfugis ltér á landi, Jteirra síðastur Faber (1828). Stafar þetta
af því, að menn töldu lengi vel, að húsönd væri sama tegund og hvin-
önd, og mun ég ekki rekja Jtað mál frekar.
Hér fara á eftir allar aðrar heimildir um hvinendur hér á landi.
Athuganir, sem vafalaust eru rangar eða óáreiðanlegar, hef ég sett
innan hornklofa. Til frekari glöggvunar hef ég tekið upp kafla
orðrétt úr frumheimildum í eftirfarandi yfirliti. Einungis er vísað
til heimilda, er einhverju máli skipta, en yfirleitt sleppt seinni til-
vísunum í handbókum.