Náttúrufræðingurinn - 1972, Qupperneq 9
Náttúrufr. — 42. árgangur — 1.—2. hefti — 1.—80. síða — Reykjavík, júni 1972
Aðalsteinn Sigurðsson:
Prófessor Gunnar Thorson
31. des. 1906 - 25. jan. 1971.
Á miðju árinu 1971 barst mér sú harmafregn, að einn af fyrrver-
andi kennurum mínum við Hafnarháskóla, prófessor dr. Gunnar
Axel Wright-Thorson hefði látizt af hjartasjúkdómi 25. janúar.
Gunnar Thorson fæddist í Kaupmannahöfn 31. desember 1906.
Hann fékk snemnra mikinn áhuga á náttúrufræði og varð þegar á
unglingsárum fyrir áhrifum frá danska fiskifræðingnum C. G. Jó-
hannes Petersen, sem hann ætíð dáði mjög.
Hann lauk meistaraprófi (mag. scient) í dýrafræði frá Hafnarhá-
skóla árið 1930. Sex árum seinna varði hann doktorsritgerð um
lirfur og lifnaðarhætti botndýra við Austur-Grænland. Nefnist hún
„The Larval Development, Growth and Metabolism of Arctic Mai'-
ine Bottom Invertebrates". Gögnum í þessa ritgerð safnaði hann við
Austur-Grænland í þriggja ára leiðangri, sem hann tók þátt í, og
stjórnaði síðasta árið. Þetta rit er að því leyti nrjög mikilvægt fyrir
okkur íslendinga, að það fjallar m. a. um ýmsar dýrategundir, sem
lifa hér við land.
Ég kynntist Thorson veturinn 1946—1947, en það var fyrsti vet-
urinn minn við Hafnarháskóla. Hann var þá dósent þar og hélt
fyrirlestra um kjarafræði (ökologíu) botndýra í sjó. í fyrstu átti ég
mjög erfitt með að fylgjast með því sem hann sagði, bæði vegna lé-
legrar dönskukunnáttu og einnig þess hve hratt hann talaði. Áhugi
hans á viðfangsefnunum var svo mikill og hann átti svo leikandi létt
með að skýra frá því, sem honum bjó í brjósti, að hann hefði tæplega
getað lesið hraðar, þótt hann hefði skrifað fyrirlestrana, hvað hann
ekki var vanur að gera, en framsetningin var engu að síður ávallt
skýr og auðskilin. Sérhver, sem á hann hlustaði hlaut að hrífast með