Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 27
N Á T T Ú R U F R Æ Ð IN G U R1N N
15
aldursákvarðanir voru gerðar með kalí-argon aðferð (Moorbath, H.
Sigurðsson og Goodwin, 1968 s. 198). Geta túfflögin í Mókollsdal
verið af svipuðum aldri og bergið frá Breiðadalsheiði? Vegna
jarðlagahallans er líklegra, að lögin í Mókollsdal séu yngri. Það
má einnig gera ráð fyrir, að Brjánslækjarlögin séu frá míósen, og
ef við tökum aftur jarðlagahallann með í reikninginn, virðast lögin
í Mókollsdal sömuleiðis yngri en lögin við Brjánslæk.
Eins og fyrr hefur verið minnst á, eru túfflögin í Mókollsdal
sennilega nátengd fornri öskju á miðju Kollafjarðarsvæðinu eða
eldstöðinni í Króksfjarðarnesi. Vert er í því sambandi að vekja at-
hygli á löngum samhverfuás, sem gengur í norðausturátt frá Snæ-
fellsjökli og hefur stefnu á Mókollsdal. Aldursákvörðun (kalí-argon
aðferð) á bergsýni, sem var tekið í nánd við samhverfuna á Snæ-
fellsnesi, sýndi aldurinn 6,7 ± 0,4 milljón ár (Moorbath, H. Sigurðs-
son og Goodwin, 1968 s. 198). Aldur túfflaganna í Mókollsdal liggur
að öllum líkindum milli 6,7 ± 0,4 milljón ára (Snæfellsnes) og
16,0 ± 0,3 milljón ára (Breiðadalsheiði). Þar að auki virðast plöntu-
steingervingarnir eindregið benda til þess, að lögin í Mókollsdal
séu yngri en lögin við Brjánslæk. Flest styður þannig þá ályktun,
að túfflögin í Mókollsdal séu annað hvort orðin til á efra-míósen eða
neðra-plíósen.
HEIMILD ARIT
Áskelsson, Jóhannes. 1960: Fossiliferous xenoliths in the móberg formation of
South Iceland. Acta Nat. Isl. 2 (3), 1—30. Reykjavík.
— 1961: Um íslenzka steingervinga. Náttúra Islands, 47—63. Reykjavík.
Bárðarson, Guðmundur G. 1918: Um surtarbrand. Andvari 43, 1—71. Reykja-
vík.
— 1925: A stratigraphical survey of the Pliocene deposits at Tjörnes, in
Northern Iceland. Kgl. danske Vid. Selsk. Biol. Medd. 4 (5), 1 — 118,
Kyibenhavn.
Einarsson, Þorleifur, Hopkins, D. M. and D<oell, R. R. 1967: The Straúgraphy of
Tjörnes, Northern Iceland, and the history of the Bering Land Bridge.
The Bering Land Bridge, 312—325. California.
Friedrich, W. L. 1966: Zur Geologie von Brjánslaekur (Nordwest-Island) unter
besonderer Beriicksichtigung der fossilen Flora. Sonderveröff. Geol. Inst.
Univ. Köln 10, 1 — 108.
Germar, E. F. and Berendt, G. C. 1856: Die im Bernstein befindlichen Hemip-
teren und Ortliopteren der Vorwelt, Organische Reste im Bernstein 2.
Blattlause, 4—7.