Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1975, Blaðsíða 29

Náttúrufræðingurinn - 1975, Blaðsíða 29
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 155 er sennilega jafnframt fyrsta gos í Heklugjá. Fyrstu árþúsundin eftir upphaf eldvirkni, framleiðir Hekla hlutfallslega mun meira af súrri gjósku en hraunum.Erfitt er að segja hvenær þetta hlutfall breytist. Sennilega smátt og smátt. Á síðasta árþúsundi er svo komið að framleiðsla hrauna er mun veigameiri en framleiðsla gjósku. Þar eð súru gjóskugosin eru mjög strjál, verður ekkert um það sagt, hvort um raunverulega minnkun í framleiðni slíks efnis er að ræða. Hitt virðist augljóst, að hraunaframleiðslan hefur auk- ist að mun í seinni tíð. Bergtegundir Gjóska og hraun frá Heklu samanstanda af bergtegundum sem hafa mjög breytilega samsetningu. í töflu 2 eru skráðar efna- greiningar kísilríkustu og kísilsnauðustu bergtegundanna, en Hekla framleiðir einnig bergtegundir með samsetningu sem liggur þarna á milli. Kísilríka bergið kemur upp sem gjóska í stórgosum. Kísilsnauða bergið kemur upp í hraungosum. Samsetning gjóskunnar er þá breytileg en Sigurður Þórarinsson hefur sýnt fram á, að kísilinni- hald fyrstu gjósku í hraungosi verður þeim mun hærra sem lengra er liðið frá síðasta hraungosi. Þó er kísilmagn slíkrar gjósku aldrei eins hátt og kísilmagn í gjósku stórgosanna. Þegar fyrstu goshrin- um lýkur breytist eðli gosefnanna og hraun byrjar að renna. Fyrsta hraunið er nokkuð kísilríkara en það sem síðar kemur upp, en öll hraungos enda með framleiðslu efnis, sem hefur mjög líka samsetn- ingu og kísilsnauðasta bergið. Stóru gjóskugosin byrja með fram- leiðslu kísilríkasta bergsins sem frá Heklu kemur. Þessi kísilríka gjóska myndar ljósu gjóskulögin. Oft sést lagskifting í ljósu gjósku- lögunum með hvítum vikri neðst en móleitu vikurafbrigði ofar í laginu. Eínagreiningar sýna aukningu á járni í vikri úr síðari hrinum stórgosanna. Bæði stórgosin og hraungosin framleiða efni sem er kísilríkast í gosbyrjun, en verður kísilsnauðara í lokin. Síðasta gjóska frá stórgosi verður þó sjaldan eða aldrei jafn snauð í kísli og fyrsta gjóska frá hraungosi. Gosið í Heklu 1970 bætir einni veigamikilli athugun við. í fyrstu goshrinunum kom upp kísilsnauð gjóska. Mjög skammur tími var liðinn frá síðasta gosi (1947) og því varð lítill munur á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.