Náttúrufræðingurinn - 1975, Blaðsíða 48
172
NÁTTÚRU FRÆÐ1N G U RIN N
1. mynd. Lurkabreiða á suðvesturhluta botns hins fyrrverandi Vatnshamra-
vatns í ágúst 1964. Myndin gefur einnig hugmynd um gróðurfar. Vatnsbakkinn,
sem sést í baksýn, hefur verið jafnaður og unninn með jarðvinnslutækjum, en
er ósáinn. (Ljósm. I. Y. Ashwell, 1964).
staða fannst, nema þar sem áðurnefndur hryggur gengur undir
hann að suðvestan. Vatnsbotninn er þarna um 1,5 m neðar en bakk-
inn, þannig að þykkt mýrarmyndunarinnar er alls yfir 4 m.
Aldursgreining
Á vatnsbotninum sitja eftir lurkar, langmest þar senr vatnsbotn-
inn liggur hæst að suðvestanverðu. Dr. I. Y. Ashwell, sem starfar
við landfræðideild háskóla Albertaríkis í Calgary, Kanada, og kom-
ið hefur í margar rannsóknarferðir til íslands, tók sýni til aldurs-
greiningar með C14-aðferðinni sumarið 1964. V'ar viður úr lurki
aldursgreindur við Isotopes, Inc., New-Jersey, Bandaríkjunum, og
reyndist aldurinn 2720 ±110 ár, þ. e. frá 770 f. Kr. (1-1826). Þessi
aldur svarar til þess, að lurkurinn sé frá lokum síðara tímabilsins,
sem mýrarnar voru vaxnar birkiskógi, en það er talið hafa staðið