Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1975, Page 33

Náttúrufræðingurinn - 1975, Page 33
NÁTTÚRU FRÆÐINGURINN 157 fara kólnun bergkviku myndast kristallar, sem hafa aðra samsetn- ingu en kvikan. Algengt er að ólivín myndist fyrst við kólnun basaltkviku, en ólivín er mun magniumríkari og kísilsnauðari en kvikan. Ólivín er líka þyngri en basaltkvikan og sekkur því til botns í ímynduðu kvikuhólfi. Kvikan sem eftir stendur er snauðari af magníum og ríkari af kísli. Útfelling annarra kristalla hefur í för með sér hliðstæðar breyt- ingar á efnasamsetningu kvikunnar. Að lokum stendur eftir kísil- rík kvika, sem í stórum dráttum líkist gjósku stórgosanna í Heklu. Þessi tegund efnisaðgreiningar nefnist kristaldiffrun. Ef kristal- diffrun er notuð til skýringar á breytilegri efnasamsetningu gos- el'na í Heklu (Trausti Einarsson, 1953) kemur fram bæði sam- kvæmni og misræmi. Diffrunarkenningin notast við ákveðnar forsendur. Hún boðar, að allar bergtegundir Heklu séu til orðnar við diffrun kviku, sem hefur samsetningu basalts. Raunar hefur I-Iekla sjálf aldrei gosið basalti en í næsta nágrenni eru eldstöðvar, sem framleiða basalt. Eins og síðar kemur fram er einmitt þetta basalt fremur óheppileg móðurkvika, en látum það liggja milli hluta að sinni. Basaltið safnast í kvikuþró undir fjallinu, kólnar og kristallast. Eftir margra alda goshlé hefur kristöllunin náð svo langt að eftir er kísilrík kvika, sem kernur upp í stórgosi. Kvikuhólfið fyllist aft- ur og kristöllun byrjar. Ef goshléið er styttra kemur fyrst upp úr súr gjóska og síðan ísúrt hraun. Diffrunin hefur með öðrum orðurn orsakað lagskiftingu í kvikuhólfinu. Efstu hlutar kvikunnar eru kísilríkari og hún verður sífellt kísilsnauðari eftir því sem neðar dregur. Síðasta hraunið, sem upp kemur, er þó mjög verulega frá- brugðið basaltinu, sem gengið var út frá. Loks kemur sú ákveðna regla að þeim mun lengra hlé, sem verður milli hraungosa, þeim mun lengra er diffrunin gengin og þeim mun kísilríkari er gjóskan í fyrstu goshrinunum. Er basalt á Hekluslóðum sennileg móðurkvika? Við diffrun falla kristallar út í ákveðinni, allvel skilgreindri röð. Breyting á samsetningu kvikunnar, sem eftir verður, fylgir því settum reglum, sem hægt er að segja iyrir svo frerni að samsetning kristallanna sé þekkt. Erfitt er að gera grein fyrir breytingum á samsetningu kvikunn-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.