Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1975, Side 54

Náttúrufræðingurinn - 1975, Side 54
178 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Uppgræðsla vatnsbotns Gerð var athugun með sáningu grasí'ræs og dreifingu áburðar á vatnsbotninn á friðuðu landi um 100—120 m frá vesturbakkanum vorið 1964. Sáð var vallarsveifgrasi (Poa pratensis), túnvingli (Fes- tuca rubra) og vallarfoxgrasi (Phleurn pratense) af Engmo-stofni, hverri tegund sér í reiti. Reitum þessum var svo skipt í 4 áburðar- reiti, 36 m2 hvern, sem þannig var borið á (kg/ha af hreinum efnum): N P K a-reitir 0 0 0 b-reitir 0 39 0 c-reitir 120 39 0 d-reitir 120 39 83 Reitirnir voru ekki slegnir um haustið, en borið var á þá aftur 1965. Um árangur er það að segja, að sáning án áburðar kom að engu gagni; án fosfóráburðar myndast enginn teljandi gróður á Hvann- eyrarmýrinni. Af sáðgresi þreifst vallarfoxgras best. Hefur það verið mjög gróskumikið, einkum í d-reit, þar sem það þakti reitinn að meiri hluta ennþá árið 1966 en var litlu lakara í c-reit. Fosfór- áburður einn sér gefur ekki sama árangur, í b-reit þakti vallai- foxgras aðeins 10—20%. Túnvingullinn lifði sæmilega af veturinn 1964—65, en sumarið 1966 var lítið eftir af honum. Vallarsveifgrasið dó að mestu út fyrri veturinn, en 1966 lifði álíka mikið af því og túnvingli. Allar þessar tegundir hafa sáð sér nokkuð yfir í aðra reiti, mest þó vallarfox- giasið. í þessari athugun er, eins og áður segir, áberandi hve gróður- blettirnir hækka sig upp yfir umhverfið og styrkja með því aðstöðu sína. Gæti því útkoman orðið önnur, þar sem sáð væri á samfellt svæði. Einnig kynni beit að hafa áhrif á árangurinn. Ýmsar aðrar jurtir en þær, sem sáð var, voru áberandi sumarið 1966. Einkunnir fyrir hlutdeild þeirra í gróðurþekju voru gefnar sem hér segir (sánir og ósánir reitir):

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.