Náttúrufræðingurinn - 1977, Qupperneq 3
Náttúrufrœðingurinn • 46 (3), 1976 ■ Bls. 113—176 ■ lleykjavík, mars 1977
Leifur A. Símonarson:
Steinn Emilsson, j arðfræðingur
— Minningarorð —
Steinn Vilhelm Emilsson, jarðfræð-
ingur, lést í Landakotsspítalanum í
Reykjavík 3. desember 1975 eftir ör-
stutta legu. Banamein lians var hjarta-
Itilun.
Steinn Emilsson var fæddur á Kvía-
bekk í Ólafsfirði 23. desember 1893,
og var liann því á 82. aldursári, er
hann andaðist. Foreldrar hans voru
hjónin Emil G. Guðmundsson, prest-
ur á Kvíabekk, Stefánssonar, hrepp-
stjóra á Torfastöðum í Vopnalirði, og
kona hans, Jane M. M. Steinsdóttir,
prests í Hvammi og Árnesi, Torfason-
ar Steinsen.
Steinn ólst upp í foreldrahúsum og
tók þar barnafræðslu, en eftir fráfall
föður síns, 1907, fluttist hann með
móður sinni að Gestsstöðum við Fá-
skrúðsfjörð. Árið 1913 settist hann í
2. bekk Gagnfræðaskólans á Akureyri
og lauk þar gagnfræðaprófi vorið
1915. Um haustið innritaðist hann í
Hinn almenna Menntaskóla í Reykja-
vík, en fór þegar úr 4. bekk til Noregs.
Árið 1916 vann Steinn við silfurnám-
urnar í Kongsbergi og 1919 lauk hann
stúdentsprófi i Osló.
Þegar Steinn vann við silfurnám-
urnar í Kongsbergi safnaði hann
steinum og bergtegundum. Áhugi
hans á náttúrufræði mun hafa vaknað
snemma, en beindist nú einkum að
jarðfræði. Að loknu stúdentsprófi hóf
hann nám í jarðfræði við liáskólann
í Osló, en vann jafnframt í Toldbod-
ens Laboratorium og Schmelcks kem-
iske Bureau.
Frá Noregi lá leiðin til Þýskalands,
þar sem Steinn hélt áfram háskóla-
námi í Jena árin 1920—1923. Árið
1921 fékk hann styrk frá Alþingi til
þess að læra að kljúfa og flokka sillur-
berg, en það lærði hann í hinum víð-
frægu Zeissverksmiðjum í Jena. Silfur-
berg er tært afbrigði af kalkspati og
var mikið notað í ýmis ljóstæki, svo
sem smásjár, en notagildi þess er
einkum fólgið í jrví, að það skautar
Ijós, Jr. e. tvískiptir ljósgeisla. Silfur-
berg er algeng sprungu- og liolufyll-
ing hér á landi, en mest er af Jrví við
Hoffell í Hornafirði og á Helguslöð-
urn í Reyðarfirði. Var þar stundaður
námurekstur um nokkurt skeið og
Iivergi hafa fundist stærri silfurbergs-
kristallar. Nú hafa gerviefni að mestu
tekið við Iilutverki silfurbergs, en Jrað
er J)ó enn notað í vönduðustu tegund-
ir tækja.
Veturinn 1923—1924 kenndi Steinn
í Vestmannaeyjum og var Jjar með
Náttúrufræðingurinn, 46 (3), 1976
113