Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 13
verum leiðina upp í kjaftinn á lúsí-
fernum sem er stór og með hvassar
tennur á skoltunum. í búrinu í Vest-
mannaeyjum notaði lúsíferinn skúf-
inn við að leita að æti á botninum.
Neðri skolturinn nær lengra frarn en
sá efri. Er fiskurinn ]jví mjög yfir-
mynntur. Roðið er nijög óslétt og
hrukkótt að utan og standa stuttir
livassir broddar út úr því á víð og
dreif svo fiskurinn er mjög ó]jægileg-
ur viðkomu. Þessa brodda gat Vest-
mannaeyjalúsíferinn dregið inn og út.
Litur er kolsvartur nema ljóstækin á
ennisskúfnum sem eru hvit eins og
áður hefur verið greint frá.
Um lífshætti lúsífers er lítið vitað
eins og um flesta fiska þessa ættbálks.
Þetta eru miðsævis djúp- og botnfisk-
ar. Hjá mörgum tegundum ættbálks-
ins eru hængarnir dvergar og sjúga
sig fasta við hrygnuna sem er mörg-
um sinnum stærri og þiggja frá henni
næringu en sjá henni síðan fyrir nauð-
synlegum lífsvökva. Hængar lúsífers-
ins lifa ekki þess konar sníkjulífi á
hrygnunni. Þeir lila frjálsir og óháðir.
HEIMILDIR
Iiertelsen, E., 1951: Tlie ceratioid fishes,
ontogeny, taxonomy, distrihution and
biology. Dana rep., (39): 276 pp., 141
fig., 1 pl.
Jónsson, G., 1970: Sjaldgæfir fiskar 1969.
Ægir 4. tbl. 63. árg., bls. 66—68.
Seemundsson, B., 1926: Fiskarnir (Pisces
Islandiae). Islensk dýr, 1. xvi + 528
pp., 266 fig.
ZUSAMMENFASSUNG
Am 14. Januar 1977 hat cin islándisch-
er Fischkutter einen Tiefseefisch, Himan-
tolophus groenlandicus, Reinhardt 1837,
in Stellnetz in der Náhe von Vestmanna-
eyjar bei der Siidkuste Islands gefangen.
Der Fisch war lebendig und es sind dent
Kapitán des Bootes und seiner Besatz-
ung gelungen den Fisch lebendig ans
Laiul zu bringen wo er im Aquarium in
Vestmannaeyjar volle 6 Tage lebte. Diese
einmalige Gelegenheit seine bisher unbe-
kannte Lebensweise zu beobachten wurde
intensiv wahrgenommen. Der Fish war
ziemlich rege wáhrend seines Aufenthalt-
es im Aquarium und schwam munter um-
her. Seinen Stirnfortsatz (siehe Bild) hat
er als Fiihler verwendet um den vor sich
liegenden Boden abzutasten. Er nahm
gierig Futter auf und in diesem Falle
wurde er ntit Lodde (Mallotus villosus)
gefuttcrt.
123