Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 22

Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 22
þau þá 1—2 metra eí'tir yfirborði botnsins. Lendi parið á fyrirstöðu í botninum, smáhlut eða steini, skeytir það því engu en heldur áfram að Irrygna til enda og bægslast þá jafnvel utan í stórgrýti, þó að það komist ekkert áfram. Eftir að hrygningu pars- ins er lokið, losnar það sundur, hrygn- an er þá orðin þvengmjó, en ekki sér á hængnum. Hrygnan syndir stefnu- laust upp frá botninum, en hængur- inn samlagast fljótt hængahópnum og tekur upp fyrra atferli. Augljóslega ljúka hrygnurnar sér af í einni pörun, en hængarnir virðast geta tekið þátt í íleiri en einni pörun. í búrunum áttu paranir sér stað í hrygningarlotum. Hrygningarlotan er áköf leit hænga að reiðubúnum hrygnum. Hrygningarloturnar stóðu yfir í 10—15 mínútur og fjöruðu síð- an út. I búrunum urðu 1—3 paranir í hverri hrygningarlotu. Margir klukkutímar liðu milli hrygningar- lota og var atferli loðnunnar á meðan áþekkt og rétt fyrir fyrstu hrygningu og kynin alveg aðskilin. Bak og tálknbörð hængsins dökkna þegar líður að hrygningu, en í hrygn- ingarlotunum verða þeir alveg bik- svartir á baki og tálknbörðum. Aljerli að lokinni hrygningu Eftir hrygninguna, sem stóð í búr- unutn í 8—10 daga, breyttist atferli Iiænganna lítið. Hrygningarloturnar Jiættu, en sennilegast hefur það verið vegna jress að hængarnir hafa ekki lengur verið örvaðir af nærveru til- búinna hrygna. Eftir hrygninguna syntu hrygnurn- ar dreiíðar um búrið og mjög senni- lega yfirgefa þær hrygningarstöðvarn- ar fljótlega að lokinni hrygningu. Mikið bar á meiðslum á loðnunni eftir pörun. Vanalegast var neðri hluti höfuðs beggja kynja særður, en auk þess voru eyr-, kviðar- og raufar- uggar hængsins tættir. Þessi sár, sem voru augljóslega orsökuð af núningi við botninn við pörun, héldust illa við og leiddu til dauða talsvert marg- ar loðnur. Bæði árin, sem athuganir voru gerð- ar, dóu allir hængarnir innan mánað- ar frá hrygningu, en hluti hrygnanna lifði fram á vor og tóku þær ágætlega fóður, sem þeirn var gefið. Það er augljóst af framansögðu, að hængarnir halda sig reiðubúna til hrygningar á hrygningarstaðnum, þangað til jreir örmagnast eða deyja af sárum, en hluti hrygnanna virðist lifa hrygninguna af. Egg loðnunnar í safninu í Vestmannaeyjum rann- sakaði ég loðnueggin og þroska þeirra og mun ég nú víkja að jjví í stuttu máli. Fulljranið loðnuegg er um 1.1 milli- metri í þvermál. Efst á egghimnunni er svilop, en það er óvenju stórt og áberandi á loðnuegginu. Andspænis jrví neðst á egghimnunni er límhjúp- ur, sem hylur 1/ af yfirborði hennar. Eggið sjálít er um 90% næringarefni, eggjahvítuefni, vítamín og fita, sem er aðskilin í smákúlum. Utan um næringuna er jtunn skán af frumefni, sem fóstrið myndast úr. Á ófrjóvguðu eggi liggur egghimnan jiétt utan um sjálft eggið og límið, sem jiekur himnuna, er enn óvirkt. 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.