Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 26

Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 26
eru alls sjö svartir deplar (mynd 1C). Sjaldan verður vart við nema ein- stakar maríudeplur á íslandi. ]>ær eru góð flugdýr, en þess er þó vart að vænta, að þær geti borist til landsins öðru vísi en með aðstoð manna. Til eru þó dænti þess, að maríubjöllur liafi borist langar vegalengdir á eigin vængjum. Maríudeplur hafa oft fundist um borð í skipum í íslensk- um liöfnum. Einnig hafa þær fundist í innfluttum jólatrjám. Það bar til tíðinda sumarið 1976, að Náttúrufræðistofnun íslands bár- ust 19 maríudeplur, sem fundist höfðu á hafnarbakkanum í Reykjavík 28. júlí. Það fylgdi sögunni, að |>ær hefðu verið þar algengar, þótt fleir- um hafi ekki verið safnað. Að því er mér er kunnugt, er þetta eina dæmi þess, að tegundin hafi fundist hér á landi í jafnríkum mæli. Það var því áhugavert að leita skýringa á þessari heimsókn. Ég frétti af jrví, að dag- blöð í Danmörku og Svíþjóð hefðu verið ftdl af æsifréttum, þar sem sagt var frá gífurlegum fjölda af maríu- deplum í jjessum löndum. Ég fór ekki varhluta af því, þegar ég kont til Sví- þjóðar haustið 1976, að eitthvað hefði gengið á, því að herbergi, sem ég hafði þar á leigu, var yfirfullt af maríudeplum, lífs og liðnum. Sanit var þannig gengið frá gluggum, að þær áttu ekki greiðan aðgang inn um þá. Eftir að hafa fengið nánari upplýs- ingar um þessa maríudeplugengd, komst ég að því, að blaðaskrifin, sem ég hafði heyrt um og mér fundist heldur ótrúleg, hefðu síst verið ýkjur. Það sem skráð er hér á eftir, eru einkum munnlegar heimildir frá Carl H. Lindroth, prófessor, og fleiri rnönn- um í Lundi í Svíþjóð, auk upplýsinga úr grein eftir Owen, 1976. Ekki er mér kunnugt um, hversu víðáttumikil þessi gengd var, en svo virðist sem löndin í norðan- og vest- anverðri Evrópu hafi borið megin- þunga hennar. 1 Englandi, og líklega víðar, var tegundin óvenju algeng sumarið 1975 vegna þurrkanna, sem þá ríktu (Owen, 1976). Blaðlýs kunnu vel að meta þurrkana og urðu mjög algeng- ar á ökrum. Maríudeplan er dæmi- gerður tækifærissinni og lét því ekki Jsetta tækifæri ónotað. Notaði hún þennan óvænta aukaskammt af fæðu til að auka kyn sitt. Stofninn, sem lagðist í dvala haustið 1975, var því stór, en það eru fullorðnu bjöllurn- ar, sem liggja í dvala yfir veturinn. Þær verpa síðan á vorin, þegar þær liafa vaknað til lífsins á ný, og ný kynslóð tekur við. Það var því óvenju mikill fjökli lirfa, sem khtktist vorið 1976. Þurrkarnir frá fyrra sumri end- urtóku sig og ríktu um norðan- og vestanverða Evrópu lengi sumars 1976. Sent fyrr fór fjöldi blaðlúsa upp úr öllu valdi, einkum á höfrurn og rófukáli, og afkoma maríudeplulirf- anna varð því sérstaklega góð. Þegar lirfurnar hafa náð fullum vexti, púpa þær sig, og fullorðnar bjöllur skríða úr púpunum skömmu síðar. Á miðju sumri hafa flestar bjöllurnar skriðið úr púpunum. Þasr taka strax til við að búa sig undir vetrardvalann, og verða þá margar blaðlýs þeim að bráð. í Danmörku og Suður-Svíþjóð náði gengdin hámarki um mánaðamótin júlí—ágúst, en þá hafa flestar bjöll- 136

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.