Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 30

Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 30
2. mynd. Opna í sjávarsetið undir hraun- lagi neðst til vinstri á myndinni. móbergslögum, sem aðskilin eru af hraun- og innskotslögum. Þessi syrpa tilheyrir eldri grágrýtismynduninni og myndar klettabrúnir fyrir miðri víkinni. Móbergsmyndunin setur svip sinn á vestanverða víkina, en hraun af þessum aldri mynda þar tignarlega sjávarhamra, en í þeim eru t. d. hinar stórbrotnu stuðlamyndanir við Arnar- stapa. Til móbergsmyndunarinnar teljast einnig móbergsfjöllin upp af vestanverðri víkinni, þ. e. Botnsfjall og Stapafell, útvörður sveitarinnar í vestri. Jarðmyndanir frá nútíma koina talsvert við sögu, en til þeirra teljast Búðahraun, austast í víkinni, og hraunin, sem steypst hafa fram af fjöllunum í vestanverðri víkinni. Hraunlandarif, sem lokar stóru lóni fyrir miðri víkinni, setur einnig svip sinn á umhverfið. Kóróna sköpunar- verksins er svo Snæfellsjökull, sem gnæfir yíir víkinni. Þótt náttúrufegurð Breiðuvíkur sé stórbrotin, er hún ekki ástæða þessara skrifa, heldur er tilefnið að finna á stað sem ekki lætur mikið yfir sér. Upp af bænurn Hnausum í Breiðu- vík fellur lítil á, Hamraendalækur, í í fallegum fossi fram af fjallsbrúninni. 1 fossgilinu rná sjá allþykkan stafla af jarðlögum eldri grágrýtismyndun- arinnar, aðallega móbergs- og hraun- lög. Neðst í gilinu er opna þar sem getur að líta setlag, a. m. k. 10 metra Jjykkt (2. mynd). Þegar ég átti leið þarna um s.l. haust, vakti setlag Jietta athygli mína, 3. mynd. Steingerður smyrslingur úr sjáv- arsetinu. Nál. rétt stærð. — Ljósm. Eiríkur Þ. Einarsson. pr 140

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.